logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Fréttir eftir árum

Upplýsingar vegna boðaðs verkfalls starfsfólks í Stéttarfélaginu STAMOS

11/05/23
Til foreldra nemenda í Lágafellsskóla Upplýsingar til foreldra vegna boðaðs verkfalls starfsfólks í Stéttarfélaginu STAMOS (Starfsmannafélagi Mosfellsbæjar) mánudaginn 15. maí og til hádegis þriðjudaginn 16. maí. Boðað verkfall starfsfólks STAMOS mun hafa nokkur áhrif á skólastarf þá daga sem það stendur yfir. Í fyrstu er búið að boða til verkfalls dagana 15.-16.maí en verkfallið stendur yfir frá kl.00:00 þann 15.maí til kl.12:00 þann 16.maí. Starfsmannahópurinn sem þetta varðar eru húsvörður, kerfisstjóri, ritarar, stuðningsfulltrúar, frístundaleiðbeinendur, starfsfólk mötuneytis og skólaliðar. Þetta hefur í för með sér mjög skerta starfsemi á skrifstofu skólans þessa daga, engin starfsemi er í mötuneyti skólans þessa daga, störf sem stuðningsfulltrúar sinna falla niður s.s. gæsla í frímínútum og frístundastarf 15.maí fellur niður. Ávaxtabiti og hádegismatur er ekki í boði þessa daga. Frístundastarf fellur niður 15.maí.
Meira ...

Sumarfrístund í Lágafellsskóla sumarið 2023 fyrir nemendur í 1. – 4.bekk

27/03/23
Sumarfrístund verður í boði 8. - 23. júní fyrir börn fædd 2016 - 2013. Síðasti skráningardagur er 5. maí og eftir það er skráning bindandi. ​
Meira ...

Lokakeppni í Stóru upplestrarkeppninni

24/03/23Lokakeppni í Stóru upplestrarkeppninni
Fim. 23.mars var lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í 7. bekk í Mosfellsbæ. Fulltrúar Lágafellsskóla í keppninni í ár voru Emelía Dagbjört Thorlacius 7.-ÁPR, Hrafnhildur Rut Njálsdóttir 7.-RG, Kristján Magnús Davíðsson 7.-AH og Sunneva Jónatansdóttir 7.-RG og stóðu þau sig öll frábærlega vel. Þjálfari liðsins var Ýr Þórðardóttir sem ásamt umsjónarkennurum árgangsins Arnari, Árna Pétri, Drífu Björk og Rósu hafa þjálfað nemendur fyrir keppnina.
Meira ...

Skóladagatal 2023 - 2024

20/03/23
Búið er að setja samþykkt skóladagatal fyrir 2023 - 2024 inn á heimasíðu skólans undir flýtiflipann Skóladagatal
Meira ...

Undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar 2023

08/03/23Undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar 2023
Ellefu glæsilegir fulltrúar í 7.bekk kepptu fim. 9/3 um það hvaða fjórir aðilar yrðu fulltrúar skólans í Stóru upplestrarkeppninni sem fram fer í Kvíslarskóla fim. 23/3 kl. 16:30 við nemendur úr Kvíslar- og Helgafellsskóla
Meira ...

Skóli hefst skv. stundaskrá mið. 4.janúar 2023

02/01/23
Bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár sendum við öllum nemendum, foreldrum, starfsfólki og fjölskyldum þeirra. 🎉 Skóli hefst skv. stundaskrá mið. 4.janúar 2023😜
Meira ...

Síða 2 af 2

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira