Fréttir
22.2.2012
Öskudagur
Að vanda var haldið upp á Öskudaginn hér í Lágó. Í tilefni dagsins mættu nemendur og starfsfólk á öskudagsball hjá Svanný danskennara, flestir voru í búningum.
Í hádeginu voru snæddar pizzur og svo ís í eftirrétt.
Skemmtunin fór mjög vel fram og allir fóru ánægðir heim.
Smelltu hér til að skoða fleiri myndir.
17.2.2012
HUXI!!
Í dag föstudaginn 17. febrúar kl. 16:00-18:00, verður opnaður síðari hluti sýningarinnar HUXI! Nemendur úr 10. bekk Lágafells- og Varmárskóla hafa sett upp verk sem þeir hafa unnið undir áhrifum frá verkum Hugleiks og Arnars á sýningunni.
Við hvetjum alla til að kíkja inn og sjá upprennandi listamenn sýna verk sín.
Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.
17.2.2012
Rósaball
Í gærkvöldi hélt nemendaráðið "Rósaball" fyrir nemendur 8. -10. bekkja Lágafellsskóla og Varmárskóla.
Allir mættu í sínu fínasta pússi, skemmtu sér mjög vel og voru sjálfum sér og sínum skóla til sóma.
Leit
Mynd








