Skólareglur
1. Við viljum koma fram við aðra eins og við viljum að aðrir komi fram við okkur.
2. Við hlýðum fyrirmælum kennara og annarra starfsmanna skólans.
3. Við vinnum vel og gerum alltaf eins vel og við getum.
4. Við förum vel með allar eigur skólans.
5. Við leikum okkur á skólalóðinni en ekki utan hennar.
6. Við mætum stundvíslega í skólann og hlýðum skólabjöllunni og munum að tilkynna fjarvistir í upphafi dags.
7. Við erum ekki á reiðhjólum, línuskautum, hjólabrettum né hlaupahjólum á skólalóðinni á skólatíma.
8. Við metum heilbrigt líferni og borðum hollan mat.
9. Við hlaupum ekki á göngum skólans né erum með óþarfa hávaða þar.
10. Við virðum landslög og vitum að það er bannað að reykja og nota önnur vímuefni.
Leit
Mynd








