Beint á leiđarkerfi vefsins
Lágafellsskóli

Skólaheilsugćsla

Heilsugæsla Lágafellsskóla heyrir undir Heilsugæslu Mosfellsumdæmis. Vigdís Steinþórsdóttir hjúkrunarfræðingur og Bente Einarsson sjúkraliði sinna skólaheilsugæslu. Viðverutími í skóla er alla jafna fyrir hádegi. Viðtalstími er eftir samkomulagi.

Netfang: lagafellsskoli@heilsugaeslan.is

Meginmarkmið skólaheilsugæslu er að stuðla að börn fái að vaxa, þroskast og stunda nám sitt við bestu andlegu, líkamlegu og félagslegu skilyrði sem völ er á.

Heilsugæsla skólabarna er framhald af ung- og smábarnavernd. Skólaheilsugæslan leitast við að efla heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan þeirra.

Starfsfólk skólaheilsugæslu vinnur í náinni samvinnu við foreldra/forráðamenn, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að málefnum nemenda.

Farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál.

Reglubundnar skoðanir og bólusetningar, pdf-skjal.

Fræðsluefni hjúkrunarfræðings má finna á síðunni www.6H.is

Viðtalstími hjúkrunarfr.
mán-fös. 9:30 - 12:00

Viðvera skólahjúkrunarfræðings
mán. 9:00 - 12:00
þri.  8:00 - 15:00  fer á hádegisfund á hg.Mos. 12:00 - 13:00
mið.  8:00 - 15:00
fim.   8:00 - 16:00
fös.  8:00 - 14:00

Ef breytingar eru á þessu vita ritararnir oftast af því.


Slóđin ţín:

Upplýsingar » Skólaheilsugćsla

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta og lesblinda Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré

Mynd

Samvera - Samvinna - Samkennd