Beint á leiðarkerfi vefsins
Lágafellsskóli

Óveðursdagar

Sú regla gildir að skólahald fellur ekki niður vegna veðurs. Forráðamenn skulu þó meta ef um óveður er að ræða hvort þeir senda börn sín til skóla eða ekki. Undantekningarlaust skal þó hringja á skrifstofu skólans og tilkynna ef forráðamenn ákveða að hafa börn sín heima.

 

Stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins (SHS), skipuð framkvæmdastjórum sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, fól SHS að útbúa, í samvinnu við fræðsluyfirvöld allra sveitarfélaganna, reglur fyrir foreldra og skólayfirvöld um röskun á skólastarfi vegna óveðurs. Jafnframt var ákveðið að fylgst verði með veðri og veðurspám og senda út tilkynningar í samræmi við þessar reglur, eftir atvikum í samráði við slökkvilið, lögreglu, fræðsluyfirvöld og aðra.

Hér fyrir neðan er hægt að skoða reglurnar, einnig er þar að finna viðbragðsáætlun Lágafellsskóla. Skjölin eru á PDF formati, smelltu hér til að ná í nýjustu útgáfu Acrobat Reader.



Röskun á skólastarfi vegna óveðurs


Reglur fyrir starfsfólk grunnskóla  


Viðbragðsáætlun Lágafellsskóla

Enska

Pólska

Rússneska

Spænska

Tælenska
 


Slóðin þín:

Upplýsingar » Óveður

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta og lesblinda Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré

Mynd

Samvera - Samvinna - Samkennd