Beint á leiðarkerfi vefsins
Lágafellsskóli

Fræðasetur

Safnið er opið frá kl. 8:00 til kl. 15:00 mánud.- föstud.

Útlánstími til nemenda eru 14 dagar.

Starfsmenn: Aðalbjörg Sigtryggdóttir 

Fræðasetrið er upplýsingamiðstöð skólans. Nemendur koma og fá lánaðar bækur í tengslum við námið eða sér til skemmtunar og afþreyingar.

Þar finna þeir einnig svör við ýmsum spurningum sem tengjast náminu eða sem koma upp í dagsins önn.
Kennarar fá lánaðar bækur, myndbönd, hljóðbækur, forrit og margmiðlunarefni til að örva námsáhuga nemendanna.

Nemendur koma reglulega á skólasafnið og vinna að margvíslegum verkefnum þar sem mikil áhersla er lögð á upplýsingalæsi.
Nemendur læra að finna gögn á safninu og afla upplýsinga úr þeim.

 


Slóðin þín:

Upplýsingar » Fræðasetur

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta og lesblinda Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré

Mynd

Samvera - Samvinna - Samkennd