Nokkrar staðreyndir um einelti
- Einelti kemur fyrir í öllum aldurshópum og er tiltölulega jafn algengt en þó er hægt að merkja að aðeins dragi úr því með hækkandi aldri.
- Algengasta tegund eineltis meðal stelpna og stráka er andlegt einelti og meiðingar í orðum.
- Strákar leggja oftar í einelti en stelpur.
- Strákar nota oftar líkamlegt ofbeldi.
- Stelpur beita oftar höfnun.
- Bæði strákar og stelpur beita stríðni.
- Strákar eru oftar lagðir í einelti en stelpur.
- Strákar verða frekar fyrir líkamlegu einelti en stelpur.
- Stelpum er frekar hafnað (útilokaðar) en strákum.
- Á unglingsárum verða meiri breytingar á hlutverkunum og við upphaf framhaldsskólans verða þeir sem leggja í einelti meira áberandi en fórnarlömbin.
(Saman í sátt, 2001)
Leit
Mynd








