Beint á leiðarkerfi vefsins
Lágafellsskóli

Meðferð eineltismála

Vitneskja berst um einelti til starfsfólks skólans frá nemenda, foreldrum/forráðamönnum eða öðru starfsfólki. Ávallt skal gæta trúnaðar við meðferð eineltismála.

Málinu vísað til umsjónarkennara.

Umsjónarkennari greinir málið samkvæmt skilgreiningu skólans á einelti.  Hann leitar eftir upplýsingum frá öðru starfsfólki skólans og foreldrum/forráðamönnum; hvar, hver, hvenær, hvernig, hverjir áttu hlut að máli og skráir það hjá sér á ferilsskráningarblað. 

Ef umsjónarkennari metur að um einelti sé að ræða gerir umsjónakennari foreldrum/forráðamönnum gerenda og þolenda grein fyrir stöðunni. Farið er yfir:

  • hver tilboð skólans eru til að aðstoða þolanda og geranda.
  • hvað foreldrar/forráðamenn geta gert til aðstoðar barni sínu og skólanum.
  • samstarf foreldra/forráðamanna og umsjónakennara um eftirfylgd málsins.

Umsjónarkennari metur hvaða vinnuferli hentar best miðað við aðstæður hverju sinni. Algengt vinnuferli er:

  • foreldrum/forráðamönnum gerenda og þolenda er gerð grein fyrir málavöxtum og áætlun skólans kynnt fyrir þeim.
  • allir nemendur bekkjar/hóps teknir í stutt einkaviðtal.
  • gerendur eru teknir í einkaviðtöl og viðtalinu fylgt eftir.
  • stuðningsviðtöl við þolandann.
  • stuðningsviðtöl við gerendur.
  • eftirlit er aukið þar sem einelti hefur átt sér stað.

Ef umsjónarkennari óskar aðstoðar eða ráða frá einelstisteymi biður hann um fund með teyminu og kemur með afrit af ferliskráningarblaði á fundinn.

Ef aðgerðir bera ekki árangur að mati umsjónarkennara og eineltisteymis er málinu vísað til nemendaverndarráðs.

Allt ferlið er skráð af umsjónarkennara á sérstakt skráningarblað og öll gögn varðandi hvert mál geymd hjá námsráðgjafa. Foreldrar/forráðamenn eru einnig hvattir til að skrá hjá sér málsatvik.


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta og lesblinda Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré

Mynd

Samvera - Samvinna - Samkennd