Beint á leiðarkerfi vefsins
Lágafellsskóli

Áætlanir


1. Nemendur

  • Gera þarf nemendum grein fyrir því  að þeir eru ekki að klaga ef þeir segja frá því að þeim eða einhverjum líði illa vegna eineltis eða annars ofbeldis.
  • Nemendur séu hvattir til að taka afstöðu gegn einelti  í verki með því að bregðast við til hjálpar og láta vita. 

Nemendur geta tekið afstöðu gegn einelti án róttækra aðgerða með því að:

  • Hleypa öllum inn í félagahópinn.
  • Neita að taka þátt í einelti
  • Sýna vanþóknun sína á einelti án orða, með fasi, svipbrigðum og athöfnum.

Nemendur geta beitt róttækari aðgerðum gegn einelti með því að:

  • Kalla á hjálp frá  fullorðnum.
  • Biðja gerendur að láta þolendur í friði.
  • Hjálpa þolandanum að forða sér úr aðstæðum.
  • Hvetja aðra nemendur til að taka afstöðu gegn eineltinu.
  • Fylgja þolandanum til einhvers af starfsfólki skóla og hvetja hann til að segja frá eineltinu.

(Tekið upp úr bókinni Gegn einelti – handbók fyrir skóla (2000) bls. 27.)

2. Foreldrar/forráðamenn

  • Foreldrar/forráðamenn fái upplýsingar um stefnu skólans í eineltismálum og séu hvattir til að leggja skólanum lið.
  • Foreldrar/forráðamenn séu beðnir að láta börn sín vita að þeir styðji stefnu skólans og vilji hvorki að þau séu lögð í einelti, leggi aðra í einelti né séu áhorfendur að einelti.
  • Foreldrar/forráðamenn geta best stutt stefnu skólans með því að kenna börnum sínum að bera virðingu fyrir öðru fólki og hvetja þau til góðra samskipta við skólafélaga sína.
  • Foreldrar/forráðamenn hvetji börn sín til að láta vita ef þeim eða öðrum líður illa og séu tilbúnir til að hlusta á þau og veita þeim stuðning.
  • Foreldrar/forráðamenn hafi samband við umsjónarkennara, námsráðgjafa, hjúkrunarfræðinga eða skólastjórnendur ef þeir fá grun um einelti í skólanum.

3. Starfsfólk

  • Skólastjóri sjái um að hausti fari fram fræðsla og umræða um stefnu skólans í eineltismálum. Fræðslunni sé beint til nemenda, foreldra og starfsfólks skólans.
  • Allir starfsmenn séu vakandi fyrir því að einelti geti komið upp í skólanum og séu tilbúnir til að bregðast strax við ef þeir verða vitni að slíku.
  • Starfsfólk þarf að vera tilbúið að hlusta á nemendur.  Nemendur geta treyst því að þeir geti tali við starsfólk í trúnaði og njóti nafnleyndar. Trúnaður er í flestum tilfellum forsenda þess að nemendur láti vita af einelti.
  • Þegar foreldrar eða nemendur snúa sér til starfsfólks vegna eineltismála er mikilvægt að starfsfólk taki ábendingum alvarlega og sé tilbúið að hlusta, aðstoða og benda á við hvaða aðila er hægt að tala.
  • Nauðsynlegt er að starfsfólk skólans fái handleiðslu, stuðning og hvatningu við vinnslu og lausn einstakra eineltismála.
  • Umsjónarkennarar leggi áherslu á góðan bekkjaranda og  bekkjarreglur sem brýni fyrir nemendum að einelti leyfist ekki í skólanum. Minna þarf á reglur, ræða þær og jafnvel æfa.
  • Að hafa lifandi vinnu og umræðu um einelti inn í kennslustofunni.

4. Ábyrgð

  • Ef upp kemur einelti í skólanum á umsjónarkennari og skólastjórnendur að vinna að lausn málsins og hafa samband við foreldra/forráðamenn. Leita skal aðstoðar eineltisteymis, námsráðgjafa, skólasálfræðings og annars fagfólks eftir þörfum.
  • Annað starfsfólk, foreldrar og nemendur geta aðstoðað við lausn mála.
  • Vakni grunur um einelti á strax að láta umsjónarkennara viðkomandi nemenda vita.
  • Umsjónarkennari nemenda sem orðið hefur fyrir einelti ber ábyrgð á að koma upplýsingum um málið til annarra kennara og fólks sem annast gæslu.

5. Skólareglur

  • Skólareglur innihalda ákvæði um góð samskipti og að einelti leyfist ekki.
  • Reglur um góð samskipti séu kynntar í öllum  bekkjum og nemendum hrósað og umbunað þegar vel gengur. Lögð sé áhersla á það við nemendur að þeir virði þessar reglur í skólanum, á leið í og úr skóla, í búningsklefanum og sturtum í íþróttahúsi.
  • Foreldrar/forráðamenn taki höndum saman við starfsfólk skólans og leggi áherslu á sömu viðhorf heima og í skólanum. 

6. Kannanir og upplýsingar

  • Kanna skal líðan nemenda árlega. Kannanir eru á ábyrgð skólans. Einstaklingsviðtöl og ritunarverkefni þar sem nemendur eru fengnir til að skrifa um tilfinningar sínar og samskipti í skólanum koma líka til greina.
  • Þemadagar, myndbönd, fræðsluefni og foreldrafundir þar sem niðurstöður könnunar eru kynntar.
  • Foreldrar/forráðamenn barna sem verða fyrir einelti í skólanum fái upplýsingar um það eins fljótt og verða má, hvernig þeir geti brugðist við heima ásamt upplýsingum um hvernig skólinn ætli að tryggja sem best öryggi barnsins.
  • Foreldrar/forráðamenn gerenda fái einnig upplýsingar um gerðir barnsins síns og taki virkan þátt í því með skólanum að setja barninu mörk og eigi kost á aðstoð og leiðbeiningum við hegðunarmótandi aðgerðir fyrir einstaklinginn.
  • Umsjónarkennari afli upplýsinga um nýja nemendur frá foreldrum/forráðamönnum og fyrri skóla svo hægt sé að vinna að því að skólaskipti gangi vel.

7. Skráning

  • Námsráðgjafi sjái um að upplýsingar um öll eineltismál sem upp koma séu skráð í gagnagrunn skólans. Þar komi fram lýsing á hvernig tekið var  á málinu, hvernig það leystist og hverjir eiga að fylgja málinu eftir.
  • Kennarar haldi eigin skrá um eineltismál sem upp koma hjá þeim, hvernig mál þróast og hvernig unnið er úr þeim.

8. Gæsla

  • Skólayfirvöld bera ábyrgð gagnvart foreldrum/forráðamönnum á að gæsla sé góð í frímínútum, á göngum, á skólalóð, í búningsklefum og sturtum í íþróttahúsi. Hvað varðar gæslu í íþróttahúsi ber skólayfirvöldum að hafa samvinnu við æskulýðs- og íþróttafulltrúa bæjarins.
  • Skólaleikvellinum sé skipt í umsjónarsvæði og er æskilegt að tveir starfsmenn séu á hverju svæði.
  • Til að rjúfa þau skörpu skil sem eru á milli kennslustunda og frímínútna skal með sérstöku átaki og vinnureglum samræma starf kennara, skólaliða, gangavarða og umsjónarmanna búningsklefa til varnar gegn einelti innan skólans og fyrir bættri almennri hegðun.

Slóðin þín:

Upplýsingar » Einelti » Áætlanir

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta og lesblinda Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré

Mynd

Samvera - Samvinna - Samkennd