Beint á leiðarkerfi vefsins
Lágafellsskóli

Eineltisteymi

Einelti er ekki undir neinum kringumstæðum liðið í Lágafellsskóla!
Hvað er einelti?

Einelti er þegar ein persóna er tekin fyrir og pínd, andlega eða líkamlega, aftur og aftur af einum eða fleiri.

Einelti getur verið líkamlegt t.d. fólgið í að lemja, hrinda, sparka, stela frá öðrum eða skemma eigur annarra.
Einelti getur verið andlegt t.d. fólgið í að hóta, uppnefna, stríða, gera niðrandi athugasemdir og bréf, útiloka úr hópnum, breiða út sögur og ljúga upp á einhvern, í gegnum SMS, MSN og á bloggi.


Stríðni, átök og einstakur ágreiningur milli jafningja telst ekki til eineltis.

 

Ofbeldi er vísvitandi meiðandi hegðun þar sem einstaklingur eða hópur beitir valdi til að meiða eða niðurlægja aðra. Einstakt ofbeldisatvik getur verið merki um að sá sem fyrir ofbeldinu verður hafi verið lagður í einelti.

 

Við Lágafellsskóla starfar eineltisteymi sem vinnur að sameiginlegri lausn og fyrirbyggjandi aðgerðum í eineltismálum.

Í eineltisteymi  20010-2011 starfa:

Guðrún Ingibjörg Stefánsdóttir, umsjónarkennari 3. GIS gudruningib@lagafellsskoli.is    

Gunnhildur Harðardóttir, deildarstjóri sérkennslu og mats gunny@lagafellsskoli.is  

Jóhanna Magnúsdóttir, skólastjóri johannam@lagafellsskoli.is  

Svanhildur Svavarsdóttir, starfs- og námsráðgjafi svanhildur@lagafellsskoli.is   

Vilborg Sveinsdóttir, sérkennari á miðstigi vilborg@lagafellsskoli.is  

Vigdís Steinþórsdóttir, hjúkrunarfræðingur lagafellsskoli@mos.hg.is  

Ýr Þórðardóttir, grunnskólakennari á elsta stigi yr@lagafellsskoli.is  

Ráðgjafi:  Hulda Sólrún Guðmundsdóttir, sálfræðingur hg@mos.is  

 

 


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta og lesblinda Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré

Mynd

Samvera - Samvinna - Samkennd