Almennt um innritun
Umsóknir um nám í framhaldsskólum fyrir haustönn 2011
Lokainnritun nemenda í 10. bekk
16. maí til 9. júní
Lokafrestur 10. bekkinga til að breyta umsóknum úr forinnritun. Einkunnir umsækjenda verða sendar rafrænt frá grunnskólum til framhaldsskóla þann 11. júní.
Starfsbrautir fyrir fatlaða
Innritun á starfsbrautir er ekki rafræn og henni lauk 28. febrúar síðastliðinn. Þeir sem ekki hafa þegar sótt um geta þó sent viðkomandi framhaldsskóla skriflega umsókn til 1. apríl næstkomandi.
Stefnt er að afgreiðslu allra umsókna á starfsbrautir fyrir lok apríl.
Forinnritun nemenda í 10. bekk fyrir haustönn 2011 er lokið
en hún stóð yfir frá 21. mars til 1. apríl
Forinnritun nemenda í 10. bekk (fæddir 1995 eða síðar). Nemendur fengu bréf frá ráðuneytinu með veflykli og leiðbeiningum afhent í grunnskólunum.
Umsækjendur þurfa að hafa tiltækan veflykil til að sækja um. Hægt er að sækja um veflykil héðan af síðunni og fá hann sendan til sín í netpósti. Ef veflykill er týndur er einfaldlega sótt um nýjan veflykil.
Við útfyllingu umsóknar er framhaldsskóli valinn ásamt einum skóla til vara, sem og námsbraut og önnur þjónusta sem er í boði í einstökum skólum. Ef viðkomandi skóli er ekki í boði í fellivalmynd sem er verið að sækja um í, þá er það vegna þess að skólinn er ekki með opið fyrir innritun. Í þeim tilfellum er best að hafa samband við viðkomandi skóla og spyrjast fyrir. Athugið einnig að ef áhugi er fyrir að taka ákveðna áfanga á næstu önn þá er gott að nefna það í athugasemdareit.
Hver framhaldsskóli afgreiðir þær umsóknir sem honum berast. Þurfi skóli að synja umsókn verður hún send til þess skóla sem sótt var um til vara. Fái umsækjandi sem er ólögráða (yngri en 18 ára) ekki inni í neinum skóla berst umsókn til mennta- og menningarmálaráðuneytis.
Framhaldsskólarnir senda umsækjendum tilboð um skólavist ásamt greiðsluseðli fyrir skólagjöldum með tilgreindum greiðslufresti. Sé gjald ekki greitt á réttum tíma er litið svo á að umsækjandi ætli ekki að þiggja veitta skólavist.
Skoða stöðu umsóknar
Nemendur skrá sig inn eins og þegar sótt var um.
Athugið vel að ekki er nóg að fylla út umsókn, það þarf að smella á "SENDA INN UMSÓKN". Þá á strax að koma upp staða umsóknar, þe. "Í vinnslu" hjá fyrsta skóla í vali. Skóli sem sóttur er um í varaval sér ekki umsóknina fyrr en fyrsti skóli hefur lokið vinnslu hennar.
Nemendur eiga að fá senda staðfestingu í netpósti um að umsóknin hafi verið send inn. Athugið að ef þessi staðfesting berst ekki gæti pósthólfið haldið að hún sé "spam", þe. ruslpóstur. Byrjið því á að leita þar að kvittuninni. Á umsóknarvefsíðunni undir Staðfesta, er einnig hægt að smella á "Senda staðfestingu í netpósti".
Eftirfarandi merkingar eru notaðar.
- Í vinnslu - þýðir að umsókn er til athugunar í viðkomandi skóla.
- Samþykkt - þýðir að umsókn er samþykkt og búið að senda bréf um það til nemanda.
- Samþykkt, í bið - þýðir að búið er að samþykkja umsókn en ekki er búið að ganga frá bréfi til nemanda.
- Hafnað, varaskóli - þýðir að umsókn hafi verið send frá viðkomandi skóla í næsta skóla sem nemandi sótti um.
- Hafnað, í bið - þýðir að umsókn hafi verið hafnað en ekki er búið að senda hana áfram í næsta skóla.
- Hafnað, án varaskóla - þýðir að nemandi valdi ekki fleiri skóla og umsókn fer til ráðuneytis ef um nemanda sem var að ljúka 10. bekk er að ræða.
- Samþykkt í öðrum skóla - þýðir að búið er að samþykkja umsóknina annars staðar.
Landið er eitt innritunarsvæði og geta umsækjendur sótt um hvaða framhaldsskóla sem er óháð búsetu en nemendur sem eru að ljúka grunnskóla eiga forgang inn í ákveðna framhaldsskóla með hliðsjón af nágrenni við skóla, hefðum og samgöngum. Þrátt fyrir þennan forgang er ekki hægt að lofa umsækjendum að skólinn geti tekið við þeim. Nemendur þurfa að uppfylla inntökuskilyrði þeirra brauta sem þeir sækja um á og fer það eftir fjölda þeirra sem sækja um hvort hægt sé að veita öllum viðtöku. Ef umsóknir eru fleiri en plássin þá nota skólarnir ákveðnar fyrirframuppgefnar reglur sem þeir nota til að velja á milli nemenda.
Leit
Mynd








