Beint á leiðarkerfi vefsins
Lágafellsskóli

Upplýsingar um framhaldsskóla

Nemendur sem eru að ljúka grunnskóla eiga rétt á skólavist í framhaldsskóla samkvæmt lögum um framhaldsskóla nr.92/2008.

Innritun 2012

Forinnritun nemenda í 10. bekk verður 12. til 30. mars
Forinnritun nemenda í 10. bekk (fæddir 1996 eða síðar) hefst mánudaginn 12. mars og lýkur föstudaginn 30. mars. Nemendur fá bréf frá ráðuneytinu með veflykli að innritunarvef og leiðbeiningum afhent í grunnskólunum. Foreldrar/forráðamenn nemenda fá bréf í pósti frá ráðuneytinu með upplýsingum um innritunina. Ráðuneytið hvetur nemendur í 10. bekk eindregið til að taka þátt í forinnrituninni.

Lokainnritun nemenda í 10. bekk verður 4. maí til 8. júní
Nemendur í 10. bekk hafa frest til sækja um nám í framhaldsskóla eða breyta umsóknum úr forinnritun til miðnættis föstudaginn 8. júní. Einkunnir þeirra verða sendar rafrænt frá grunnskólum til framhaldsskóla eftir skólaslit.

Nánari upplýsingar um innritun í framhaldsskóla má fá á Menntagátt
og hjá Kristrúnu Birgisdóttur í mennta- og menningarmálaráðuneytinu í síma 545 9546.

Facebook síðan Ráðgjafi Innritunar Í Framhaldsskóla er einnig komin í loftið. Síðan er ætluð 10. bekkingum, en þar geta nemendur fengið svör við spurningum sem upp koma við innritun.  

Bendill - rafræn áhugakönnun http://vefir.khi.is/bendill/  

Bendill er mats- og upplýsingakerfi sem hannað er til að aðstoða þá sem taka þurfa ákvarðanir um nám eða starfsvettvang. Í ráðgjöf um náms- og starfsval er lögð áhersla að fólk velji nám og síðar starf, sem hæfir áhuga þeirra. Þetta er mikilvægt og ýtir undir ánægju í starfi og að hverjum og einum vegni vel á vinnumarkaði. Bendil má nota annarsvegar til að meta starfsáhuga og hinsvegar til að afla upplýsinga um nám og störf.

Nemendur í 10. bekk geta tekið áhugakönnunina hjá náms- og starfsráðgjafa Lágafellsskóla.

Frekari upplýsinga varðandi val á framhaldsskóla er hægt að nálgast hjá náms- og starfsráðgjafa.

 

Tenglar á ýmsa framhaldsskóla

Höfuðborgarsvæðið

Borgarholtsskóli: http://www.bhs.is/

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti: http://www.fb.is/

Fjölbrautaskólinn í Garðabæ: http://www.fg.is/ 

Fjölbrautaskólinn við Ármúla: http://www.fa.is/

Flensborgarskólinn í Hafnarfirði: http://www.flensborg.is/

Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ: http://www.fmos.is/    

Hússtjórnarskólinn í Reykjavík: http://www.husstjornarskolinn.is/

Iðnskólinn í Hafnarfirði: http://www.idnskolinn.is/

Kvennaskólinn í Reykjavík: http://www.kvenno.is/

Menntaskólinn Hraðbraut: http://www.hradbraut.is/

Menntaskólinn í Kópavogi: http://www.mk.is/

Menntaskólinn í Reykjavík: http://www.mr.is/

Menntaskólinn við Hamrahlíð: http://www.mh.is/

Menntaskólinn við Sund: http://www.msund.is/

Myndlistaskólinn í Reykjavík: http://www.myndlistaskolinn.is/

Tækniskólinn: http://www.tskoli.is/

Verslunarskóli Íslands: http://www.verslo.is/

 

Utan höfuðborgarinnar

Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra: : http://www.fnv.is/

Fjölbrautaskóli Snæfellinga:  http://www.fsn.is/

Fjölbrautaskóli Suðurlands: http://www.fsu.is/

Fjölbrautaskóli Suðurnesja: http://www.fss.is/

Fjölbrautaskóli Vesturlands: http://www.fva.is/

Framhaldsskóinn á Laugum: http://www.laugar.is/

Framhaldsskóli í Austur - Skaftafellssýslu: http://www.fas.is/

Framhaldsskólinn á Húsavík: http://www.fsh.is/

Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum: http://www.fiv.is/

Hússtjórnarskólinn á Hallormsstað: http://www.hushall.is/

Menntaskólinn að Laugarvatni: http://www.ml.is/

Menntaskólinn á Egilsstöðum: http://www.me.is/

Menntaskólinn á Ísafirði: http://www.fvi.is/

Menntskólinn á Akureyri: http://www.ma.is/

Menntaskólinn á Tröllaskaga: http://www.mtr.is/

Myndlistaskólinn á Akureyri: http://www.myndak.is/

Verkmenntaskóli Austurlands: http://www.va.is/

Verkmenntaskólinn á Akureyri: http://www.vma.is/

 

Upplýsingar um ýmis iðnstörf og námsleiðir er hægt að nálgast á http://www.idan.is/

 

Kveðja
Eygerður
eygerdur@lagafellsskoli.is

 


Slóðin þín:

Námsráðgjafi » Framhaldsskólar

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta og lesblinda Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré

Mynd

Samvera - Samvinna - Samkennd