Náms- og starfsráđgjöf í Lágafellsskóla 2011-2012
Náms- og starfsráðgjafi er Svanhildur Svavarsdóttir
Netfang: svanhildur@lagafellsskoli.is
Hlutverk náms- og starfsráðgjafa er að standa vörð um velferð nemenda, styðja þá og liðsinna í ýmsum málum, sem varða námið, líðan þeirra í skólanum og fleira. Nemendur og foreldrar/forráðamenn geta bókað viðtöl hjá náms- og starfsráðgjafa frá mánudegi til föstudags. Nemendur geta einnig bankað upp á eða fengið aðstoð foreldra/forráðamanna eða kennara við að bóka viðtal. Skrifstofan er á unglingagangi á þriðju hæð á móti stofu 303.
Hlutverk náms- og starfsráðgjafa skiptist í:
Náms- og starfsfræðsla:
- Aðstoða nemendur við val á framhaldsnámi.
- Skipulagning framhaldsskólaheimsókna.
- Skipulögð vinnubrögð í námi bæði fyrir einstaklinga og hópa.
- Áhugakönnun.
Persónuleg ráðgjöf,
- Bæði í formi einstaklings- og hópráðgjafar.
- Prófkvíði.
- Prófundirbúningur.
- Samskiptamál og líðan nemenda í skólanum.
- Eineltismál.
- Viðtöl við nýja nemendur og eftirfylgni.
- Ýmiss önnur mál sem upp kunna að koma
Teymisvinna og ráð:
- Eineltisteymi
- Áfallateymi
- Nemendaverndarráð
Náms- og starfsráðgjafi er trúnaðarmaður og málsvari nemenda. Hann er bundinn þagnarskyldu um einkamál þeirra en er undanþeginn þagnarskyldu þegar líf, heilsa og öryggi nemenda er í húfi. Einnig ef nemandi greinir frá lögbroti.
Leit
Mynd








