Mötuneyti
Um mötuneytið:
Nemendum stendur til boða hádegisverður, kjöt- eða fiskréttir, súpur, mjólkurvörur, brauðmeti og ávextir. Matseðillinn er unninn samkvæmt manneldismarkmiðum fyrir Íslendinga og er lögð áhersla á að hafa máltíðirnar fjölbreyttar. Hugað er vandlega að næringargildi og almennri hollustu. Einnig er hægt að kaupa samlokur í mötuneytinu og eru þar samlokugrill og örbylgjuofn til afnota fyrir nemendur. Að sjálfsögðu geta nemendur komið með nestispakka að heiman og er mötuneytið aðeins valkostur og viðbót við þá þjónustu sem skólinn veitir.
Hver máltíð kostar 310 kr. rukkað er fyrir mánuð í einu.
Ávaxtabiti 100 kr. á dag rukkað er fyrir mánuð í einu.
Samlokur með osti kosta 150 kr.
Samlokur með áleggi kosta 150 kr.
Langlokur kosta 400 kr. og eru seldar í lausasölu.
Nú gefst kostur á að greiða mánaðaráskrift mötuneytis með Visa eða Mastercard, þeir sem velja sér þessa þjónustu þurfa að tilkynna breytt greiðsluform til skrifstofu skólans fyrir 15. hvers mánaðar. Sé áskrift ekki sagt upp fyrir 15. dags síðasta mánaðar áskriftartímabilsins endurnýjast hún sjálfkrafa.
Sækja þarf um áskrift í síðasta lagi 20. hvers mánaðar svo nemandinn komist í áskrift mánuðinn á eftir.
Áskrift að mötuneyti greiðist fyrirfram einn mánuð í senn. Sé áskrift ekki sagt upp fyrir 20. dag síðasta mánaðar áskriftartímabilsins endurnýjast hún sjálfkrafa. ATH. vanskil geta leitt til uppsagnar áskriftar.
Skráning og uppsögn fer fram á íbúagátt á vef Mosfellsbæjar https://ibuagatt.mosfellsbaer.is/mos.htm
Skrifstofa skólans er opin frá kl. 08:00-16:00 alla virka daga.
Verði breyting á verði máltíðar á áskriftartímabilinu þá gefst áskrifendum kostur á að endurskoða samninginn.
EKKI VERÐUR HÆGT AÐ ENDURNÝJA ÁSKRIFT VIÐ ÞÁ SEM ERU Í VANSKILUM VEGNA FYRRA SKÓLAÁRS
Matseðil hvers mánaðar er hægt að skoða með því að ýta á Matseðill hér til vinstri.
Með kveðju,
Starfsfólk skrifstofu Lágafellsskóla
Leit
Mynd








