Samþykkt á 571. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar þann 21. desember 2011
Almenn gjaldskrá leikskóla
gildir frá 1. janúar 2012
Grunngjald 3.000 kr
Almenn leikskólagjöld
| Dvalartími klst. | Almennt gjald | Morgunverður og nónhressing |
Hádegisverður | Samtals með morgunmat eða nónhressingu |
Samtals með morgunmat og hádegismat |
Samtals leikskólagjald með morgunmat, hádegismat og nónhressingu |
| 4,0 | 12.000 | 1.900 | 3.842 | 13.900 | ||
| 4,5 | 13.500 | 1.900 | 3.842 | 15.400 | 19.242 | |
| 5,0 | 15.000 | 1.900 | 3.842 | 20.742 | ||
| 5,5 | 16.500 | 1.900 | 3.842 | 22.242 | ||
| 6,0 | 18.000 | 1.900 | 3.842 | 23.742 | 25.642 | |
| 6,5 | 19.500 | 1.900 | 3.842 | 25.242 | 27.142 | |
| 7,0 | 21.000 | 1.900 | 3.842 | 28.642 | ||
| 7,5 | 22.500 | 1.900 | 3.842 | 30.142 | ||
| 8,0 | 24.000 | 1.900 | 3.842 | 31.642 | ||
| 8,5 | 25.500 | 1.900 | 3.842 | 33.142 | ||
| 9,0 | 27.000 | 1.900 | 3.842 | 34.642 |
|
Niðurgreidd leikskólagjöld um 20% |
||||
|
Dvalartími |
Niðurgreitt leikskólagjald |
Morgunverður og nón hressing |
Hádegisverður |
Samtals leikskólagjald með morgunmat, hádegismat og nónhressingu |
| 8,0 | 19.200 | 1.900 | 3.842 | 26.842 |
| 8,5 | 20.400 | 1.900 | 3.842 | 28.042 |
| 9,0 | 21.600 | 1.900 | 3.842 | 29.242 |
|
Niðurgreidd leikskólagjöld um 40% |
||||
|
Dvalartími |
Niðurgreitt leikskólagjald |
Morgunverður og nón hressing |
Hádegisverður |
Samtals leikskólagjald með morgunmat, hádegismat og nónhressingu |
| 8,0 | 14.400 | 1.900 | 3.842 | 22.042 |
| 8,5 | 15.300 | 1.900 | 3.842 | 22.942 |
| 9,0 | 16.200 | 1.900 | 3.842 | 23.842 |
| TEKJUVIÐMIÐ | ||
|
Brúttótekjur á ári |
Á mánuði |
Afsl. |
|
Einstaklingur |
||
| 0 til 2.576.700 kr. | 214.725 kr. | 40 % |
| 2.576.701 til 3.092.040 kr. | 257.670 kr. | 20 % |
|
Fólk í sambúð |
||
| 0 til 3.607.380 kr. | 300.615 kr. | 40 % |
| 3.607.381 til 4.328.856 kr. | 360.738 kr. | 20 % |
Samþykkt um leikskólagjöld
1. gr.
Í gjaldskrá skal koma fram vistunargjald barna á leikskólum bæjarins. Hægt er að sækja um niðurgreiðslur af grunngjaldi gjaldskrár . Niðurgreiðslurnar eru tekjutengdar í samræmi við samþykktir um niðurgreiðslur og eru annars vegar 40 % og hins vegar 20%. Systkinaafsláttur er 50 % fyrir hvert barn umfram eitt. Ekki er veittur afsláttur af fæði. Sækja þarf sérstaklega um alla afslætti á íbúagátt Mosfellsbæjar og leggja fram umbeðin gögn.
2. gr.
Niðurgreitt leikskólagjald gildir einungis af heilsdagsgjaldi, vegna greiðslu fyrir 8 tíma vistun eða lengri vistun.
3. gr.
Leikskólagjöld eru innheimt fyrirfram og er gjalddagi 1. hvers mánaðar og eindagi 11. hvers mánaðar. Ef forráðamenn skulda meira en 2 mánuði er heimilt að segja leikskólavist barnsins upp og setja skuldina í innheimtu.
4. gr.
Forráðamenn greiða leikskólagjald frá þeim tíma sem barnið er skráð í leikskólann. Þó barnið nýti ekki skráðan leikskólatíma vegna orlofa, veikinda eða annarra aðstæðna greiðist fullt leikskólagjald samt sem áður. Fæði er hluti af leikskólagjaldinu og fellur ekki niður þó barnið sé fjarverandi.
5. gr.
Leikskólagjald lækkar ekki vegna tilfallandi lokunar s.s. vegna námskeiða, fræðslustarfs og samstarfs kennara.
6. gr.
Leikskólagjöld falla niður einn mánuð á ári vegna sumarleyfa barnsins, í júlímánuði.
Samþykkt í bæjarstjórn Mosfellsbæjar 21. desember 2011








