Fréttir á leikskóladeild
20.sep. 2011
Opin hús á vegum skólaskrifstofu. Smella hér
1.mars 2011
Gulli kokkur kvaddur
Í dag kvöddu nemendur leikskóladeildar Lágafellsskóla Gulla kokk. Þau höfðu teiknað myndir af Gulla og skrifað til hans skilaboð og heilræði um framtíðina með kærum þökkum fyrir góða matinn.
Einnig afhentu þau honum myndskreytt ljóð og sungu fyrir hann lagið "Allur matur á að fara". Þetta var mjög hjartnæm og einlæg stund hjá þeim.
28. febrúar 2011
Innritun 6 ára barna fyrir skólaárið 2011-2012 stendur yfir 1.mars til 1. apríl. Sjá nánar á http://www.lagafellsskoli.is/frettir/nr/815/
16.febrúar 2011
Í dag heimsóttu nemendur Leikskóladeildarinnar Árbæjarsafn. Þau hafa verið að læra um siði, venjur, húsnæði, áhöld og fleira um "Í Gamla daga".
Sigurlaugur leiðsögumaður sagði þeim sögur og sýndi þeim hluti sem þau hafa verið að læra um undanfarnar vikur.
Þau skoðuðu sveitabæinn Árbæ og kirkjuna mjög vel. Á leiðinni tilbaka kíktu þau inn í fjárhús og heilsuðu upp á hænsnin. Allir skemmtu sér mjög vel og voru skólanum og sjálfum sér til sóma.
Smelltu hér til að skoða fleiri myndir.
21.janúar 2011
Í dag var komu þorra fagnað á leikskóladeildinni hér í Lágafellsskóla. Á boðstólum var þorramatur og krakkarnir fengu skemmtilega fræðslu um gamlar hefðir.



18.október 2010
Leikskóladeildin vinnur reglulega með fugl vikunnar og fyrir stuttu varð grágæs fyrir valinu. Af því tilefni kom einn nemandi deildarinnar, Jón Ottó Geirsson, færandi hendi með uppstoppaða grágæs. Gæsin hefur nú fengið heiðurssæti inná deildinni og geta krakkarnir skoðað hana að vild. Viljum við þakka Jóni Ottó kærlega fyrir gjöfina.
Leit
Mynd








