Til foreldra og forráđamanna barna í 5.-10. bekk Lágafellsskóla
*Nú þegar skólaíþróttirnar og sundtímar byrja er vert að rifja upp nokkur atriði sem snúa að sund og íþróttakennslunni hjá okkur í vetur.
Minnum á útiíþróttir sem verða út September en nemendur þurfa að koma með útiföt með sér og klæða sig eftir veðri.
*Öllum nemendum er skylt að vera í íþróttafatnaði í íþróttatímum og gildir þá ekki íþróttafatnaður sem nemandi kynni að koma í skólann og vera í yfir daginn. Einnig
er æskilegur þrifnaður að nemandi hafi með sér hrein nærföt til skiptanna ef þau eru í nærfötunum innanundir íþróttafötum í íþróttatímum því nærfötin verða blaut af svita.
*Vegna slysahættu er ekki leyft að vera með eyrnalokka eða annað skraut sem stafað getur hætta af í íþróttatímum og sundi.
*Öllum nemendum í 5. bekk og þar fyrir ofan er skylt að fara í sturtu eftir íþróttir og verða því að koma með handklæði með sér þá daga sem íþróttir eru á stundatöflunni.
*Mælst er til að nemendur eldri bekkja eða 8.-10. bekkjar séu í skóm í íþróttum.
*Mikilvægt er að nemendur komi í hentugum sundfatnaði í sundtíma, s.s. sundskýlu og sundbol. Ekki bikini (hamlandi við stungu ofl.) og ekki í víðum íþróttabuxum (hamlar hraða).
*Hringja þarf inn leyfi á skrifstofuna fyrir nemendur. Ekki er tekið við miðum.
*Íþróttir og blæðingar. Það er engin ástæða til að leggjast í hýði þegar blæðingar standa yfir, þvert á móti. Áreynsla dregur úr tíðaverkjum og þess vegan á alls ekki að sleppa tímum, þær stúlkur sem sem vilja geta farið fyrr úr tíma eða farið í sturtu heima. Ekki er gefið leyfi í íþróttum vegna blæðinga.
*Mjög mikilvægt er að nemendur mæti í alla tíma. Einkunnir í íþróttum og sundi ákvarðast af mætingu og virkni 50% próf 50%.
Með kærri kveðju Íþróttakennarar Lágafellsskóla.
Leit
Mynd








