Beint á leiđarkerfi vefsins
Lágafellsskóli

Til foreldra og forráđamanna barna í 1.–4.bekk Lágafellsskóla

Körfuboltastrákur

 

Nú í byrjun skólaárs er vert að rifja upp nokkur atriði sem snúa að íþróttakennslunni hjá okkur í vetur og þeim atriðum sem við viljum koma á framfæri.

*  Öllum nemendum er skylt að vera í íþróttafatnaði í íþróttatímum og gildir þá ekki íþróttafatnaður sem nemandi kynni að koma í í skólann og vera í yfir daginn. Gleymi nemandi íþróttafötum getur hann ekki tekið þátt í íþróttatímum. Einnig er æskilegur þrifnaður að nemendur hafi með sér hrein nærföt til skiptanna ef þau eru í nærfötunum innanundir íþróttafötunum í íþróttatímum því nærfötin verða blaut af svita.

*  Öllum nemendum í 3. bekk og þar fyrir ofan er skylt að fara í sturtu eftir íþróttir og verða því að koma með handklæði með sér þá daga sem íþróttir eru á stundatöflunni.

Nemendur í 1. og 2. bekk fara ekki í sturtu eftir íþróttatíma.

*  Nemendur 4.bekkjar og eldri mega vera í skóm í íþróttatímum en gæta verður þess að þeir striki ekki gólf og ekki hafi verið í þeim úti. Nemendur í 1.- 3. bekk eiga að vera berfættir, í tátiljum eða í ,,bremsusokkum".

*  Oft eru handklæði og allskonar fatnaður skilin eftir í búningsklefum eftir íþróttir og sund og er góð regla að merkja fatnað / handklæði með nafni og símanúmeri viðkomandi. Gott að gera slíkt með s.k. fatatúss sem ekki þvæst úr. Einnig er gott að ítreka það við börnin að vera hirðusöm um fatnað sinn.

*  Vegna slysahættu er ekki leyft að vera með stóra eyrnahringi eða annað skraut sem stafað getur hættu af í íþróttatímum.

*  Æskilegt er að foreldrar a.m.k. 4. bekkjar kenni börnum sínum að reima skóna sína og væri gott að fara yfir það hvort þar sé misbrestur á. Þó skal tekið fram að íþróttakennarar sjá ekki eftir sér að reima fyrir nemendur ef  þarf en það sjá allir að mikill tími fer í slíkt ef það eru margir sem ekki kunna að reima.

*  Góð regla er að senda barnið með orðsendingu til íþróttakennara á miða ef krankleiki hrjáir nemanda þannig að óskað sé eftir að hann sleppi íþróttum eða sundi. Einnig er nauðsynlegt að börnin komi með húfur þegar kólna fer og  þau eru að fara með blautt hár út eftir íþrótta- eða sundtíma.

Við viljum hvetja ykkur til að hafa samband við okkur ef það er eitthvað sem þið hafið áhyggjur af varðandi barn ykkar sem og ef eitthvað kemur upp á.                                                   

                                                                                                                   Með kærri kveðju,
                                                                                                                   Íþróttakennarar á yngsta stigi

            


Slóđin ţín:

Íţróttir 1.-4. bekkur

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta og lesblinda Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré

Mynd

Samvera - Samvinna - Samkennd