Beint á leiðarkerfi vefsins
Lágafellsskóli

Leiklist - Leynileikhúsið

KÆRU LEYNILEIKARAR OG FORRÁÐAMENN:

Skráningin er hafin á leiklistarnámskeið Leynileikhússins á haustönn 2009. Meðfylgjandi er stundarskrá og skráningareyðublað sem við biðjum áhugasama um að fylla út og senda okkur. Við verðum svo í sambandi með nánari upplýsingar.

NÁMSKEIÐAGJÖLD:

Verð hefur ekki hækkað pr. nemanda frá síðustu önn og er kr. 22.900.- /12 tíma námskeið.

Verð fyrir framhaldsnemendur er kr. 28.900.- / 18 tíma námskeið.

15% systkinaafsláttur.

Leynileikhúsið tekur á móti frístundakorti ITR, tómstundaávísunum Mosfellsbæjar og í Kópavogi geta foreldrar sótt um endurgreiðslu frá ÍTK að upphæð 7.500.-

FRAMHALDSNÁMSKEIÐ:

Framhaldsnámskeið eru nú á tveimur stöðum á höfuðborgarsvæðinu, í Austurbæjarskóla á sunnudögum og í Vesturbæjarskóla á laugardögum. Vinsamlegast sjáið stundaskrá fyrir frekari upplýsingar.

UMBI LEYNILEIKHÚSSINS:

Umboðsmaður leynileikhússins hefur nú sent tugi barna og unglinga í prufur til virtra kvikmyndagerðarmanna og –kvenna vegna auglýsinga, sjónvarpsþátta og kvikmynda. Nokkrir hæfileikaríkir og heppnir krakkar hafa landað hlutverkum sem þegar er byrjað að sýna í sjónvarpi og eru væntanleg í bíóhús  og í sjónvarp.

TIL HAMINGJU KRAKKAR.

Stundarskrá Leynileikhússins haustið 2009.

ALMENN NÁMSKEIÐ

Lágafellskóli (Föstudagar) Ath – breyttir dagar
Kl 14:30-15:30 (2.-3. bekkur)
Kl 15:45-16:45 (4.-5. bekkur)
Kl 17:00-18:00 (6.-8. bekkur)
 

FRAMHALDSNÁMSKEIÐ

Vesturbæjarskóli (laugardagar)
Kl 11:00-12:30 (4.-5. bekkur)
Kl 12:45-14:15 (6.-7. bekkur)
Kl 14:30-16:00 (8.-10. bekkur)
Austurbæjarskóli (Sunnudagar)
Kl. 13.45-15.15 (4.-5.bekkur)
Kl. 15.30-17.00 (6.-7. bekkur)
Kl. 17.15-18.45 (8.-10. bekkur)

Skráningablað

Skráningareyðublað sendist til info@leynileikhusid.is

og Leynileikhúsið hefur samband um hæl.

Bestu kveðjur

Leynileikhúsið

Bjarni og Agnar

s: 864-9373

info@leynileikhusid.is

www.leynileikhusid.is


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta og lesblinda Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré

Mynd

Samvera - Samvinna - Samkennd