Beint á leiðarkerfi vefsins
Lágafellsskóli

Kynning á blakíþróttinni

 

Næstu 2 vikur mun blakdeild Aftureldingar standa fyrir blakkynningum í 5., 6. og 7. bekk í leikfimistímum bekkjanna. Í framhaldi af því er þeim börnum sem langar að prufa íþróttina boðið á blakæfingar hjá deildinni í þessari og næstu viku þeim að kostnaðarlausu.

Föstudaginn 22. janúar endum við síðan kynninguna á skemmtimóti og bjóðum upp á pizzur.

Æfingar fyrir börn í 3.-5. bekk eru á mánudögum og miðvikudögum kl. 16:00-17:30. Æfingagjald fyrir önnina er 15.000 kr.

Æfingar fyrir börn í 6.-7. bekk eru á mánudögum kl. 16:00-17:30, þriðjudögum kl. 17:00-18:30  og fimmtudögum kl. 17:00-18:00. Æfingagjald fyrir önnina er 18.000 kr.       

Allar æfingar fara fram í íþróttahúsinu við Lágafellsskóla.

Tekið er mið af því í æfingagjöldum ef börnin eru að æfa aðrar íþróttir og komast bara á hluta æfinganna, t.d. 1 af tveimur eða 2 af þremur.

Krakkablak er skemmtileg íþrótt sem hentar öllum börnum og líka þeim sem ekki finna sig í íþróttum eins og fótbolta og handbolta því ekki er verið að keppast um boltann á milli einstaklinga og því engir árekstrar við hitt liðið heldur snýst þetta um samvinnu. Allir eru með þar sem einungis 4 eru á vellinum í einu og íþróttin krefst þriggja snertinga svo ekki er hægt að  "skilja út undan".

Við viljum hvetja foreldra til að koma og kíkja á æfingar og kynnast íþróttinni.

Verið  velkomin í krakkablak.

Stjórn Blakdeildar Aftureldingar. 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta og lesblinda Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré

Mynd

Samvera - Samvinna - Samkennd