Frístundasel
|
RÚTUFERÐIR SKÓLAÁRIÐ 2011 - 2012 |
|||||
| Frá Lágafellsskóla | |||||
| Mánudagur | Þriðjudagur | Miðvikudagur | Fimmtudagur | Föstudagur | |
| 13:50 | 13:50 | 13:50 | 13:50 | 13.50 | |
| 14:20 | 14:20 | 14:20 | 14:20 | 14:20 | |
| 15:15 | 15:15 | 15:15 | 15:15 | 15:15 | |
| Frá íþróttamiðstöðinni Varmá | |||||
| Mánudagur | Þriðjudagur | Miðvikudagur | Fimmtudagur | Föstudagur | |
| 15:40 | 15:40 | 15:40 | 15:40 | ||
| Rútur fyrir Frístundafjör | |||||
Rúturnar geta þeir nýtt sér sem eru að sækja æfingar eða tómstundir á milli skólasvæða. Ef rútan fyllist þarf að láta Frístundaselið vita svo hægt sé að panta fleiri rútur í þær ferðir.
Munum að sýna rétta hegðun í rútunum.
Frístundasel Lágafellsskóla veturinn 2011-2012
Umsókn um vistun í Frístundasel Lágafellsskóla fer fram á Íbúagátt Mosfellsbæjar, http://ibuagatt.mosfellsbaer.is/
Frístundasel Lágafellsskóla verður opið frá 13:20 -17:00 í vetur. Grunngjald fyrir vistun er 275 kr. fyrir hverja klukkustund.
Forstöðumaður Frístundasels Lágafellsskóla er Ágústa Andrésdóttir. Daglegur vinnutími Ágústu er yfirleitt frá 8:30-16:30. Flesta morgna er hægt að ná tali af Ágústu á skrifstofu Lágafellsskóla eða í síma 896-2682 ef einhverjar fyrirspurnir liggja fyrir. Sérstaklega er mælt með því að foreldrar hafi samband við forstöðumann fyrir hádegi ef áríðandi mál koma upp til að minnka álagið á símanum meðan börnin eru hjá okkur. Einnig er hægt að senda tölvupóst til Ágústu á netfangið fristund@lagafellsskoli.is
Ágústa Andrésdóttir
Forstöðumaður Frístundasels Lágafellsskóla
fristund@lagafellskoli.is
S: 896-2682
Frístundafjör Spurningar og svör
Fyrir hverja er Frístundafjörið?
Fyrir alla krakka í 1. og 2. bekk í grunnskólum Mosfellsbæjar
Af hverju Frístundafjör?
Markmiðið með Frístundafjörinu er að börnin fái að kynnast sem flestum greinum íþrótta og geti í 3. bekk ákveðið hvaða íþrótt þau vilja stunda. Það er ekki markmið Frístundafjörsins að búa til sérhæfða afreksíþróttamenn, heldur að börnin fái að stunda íþróttir í sem fjölbreyttasta formi. Einnig er það markmiðið að börnin myndi sér jákvætt hugarfar í garð hreyfingar og íþrótta hverskonar. Með markmiðsetningu fyrir Frístundafjörið eru markmið Íþróttasambands Íslands fyrir börn 8 ára og yngri höfð að leiðarljósi:
- Að æfingarnar séu fjölþættar og stuðli að bættum hreyfiþroska. Hér er átt við æfingar sem örva hinar ýmsu skynstöðvar og unnið sé með grófhreyfingar og fínhreyfingar.
- Að þjálfunin fari fram í leikformi.
- Að æfingarnar séu skemmtilegar.
- Að öll börn fái jöfn tækifæri til þátttöku.
- Að fjölgreinafélög sjái til þess að öll börn á þessum aldri hafi tækifæri til að stunda íþróttir með þessum hætti í ódeildaskiptum íþróttaskólum eða námskeiðum á vegum félaganna.
Hvernig fer þetta fram?
Öll börnin sem skráð eru í frístundasel grunnskólanna fara í Frístundafjör nema foreldrar óski sérstaklega eftir því að þau taki EKKI þátt. Börnin fara tvisvar í viku á föstum dögum, stúlkur á mánudögum og miðvikudögum og piltar á þriðjudögum og fimmtudögum. Fylgt er ákveðinni dagskrá sem börnin velja fyrir hverjar tvær vikur í senn. Með þessum hætti er börnunum kynnt fjölbreytt hreyfing í gegnum leik og auknar líkur eru á að barnið hafi þekkingu og áhuga til að velja við 8 ára aldur þá íþróttagrein sem barnið hefur mestan áhuga á. Með öðrum orðum fjölbreytt úrval af hreyfingu, breytilegt eftir árstíðum og eins verður alltaf í boði útvist/útivera fyrir þau börn sem þess óska.
Hvað er þetta langur tími á dag?
Þetta er um 75 mínútur hvorn dag en gera má ráð fyrir tíma sem fer í ferðir á milli skóla og því er þetta frá kl 13:50 - 15:45 hjá Lágafellsskóla og Krikaskóla en örlítið styttra hjá Varmárskóla þegar tillit er tekið til ferðatíma. Starfsmenn frístundaselja fylgja börnunum á milli.
Hvernig fara krakkarnir niður í Íþróttamiðstöðina að Varmá?
Frístundafjörið verður í íþróttamiðstöðinni að Varmá. Starfsmenn Frístundaseljanna fylgja börnunum í frístundafjörið. Börnin frá Lágafellsskóla og Krikaskóla fara með rútu og starfsmenn frá Frístundaseli fara með hverjum hópi í rútu og starfsmaður frá Frístundaseli Varmárskóla fylgir einnig þeirra 2 börnum. Börnin eru undir eftirliti allan tímann. Starfsmenn frístundaselja eru með börnunum í Frístundafjörinu og hafa auga með þeim og fylgja þeim aftur til baka.
Hvað kostar Frístundafjörið?
Frístundafjör er innifalið í gjaldi frístundasels sem er 275 kr. klukkustundin. Þau börn sem ekki sækja frístundasel en vilja vera með í Frístundafjöri greiða sama verð eða 275 kr. fyrir klukkustundina og er það innheimt í gegnum frístundaselin. Nauðsynlegt er að skila umsókn um vistun í frístundasel til að þau geti tekið þátt í Frístundafjöri. (Hjá Lágafellsskóla þarf að gera ráð fyrir vistun frá skólalokum og þar til barnið kemur til baka ef óskað er eftir samfellu í deginum.) Hægt er að óska eftir að frístundaávísun komi upp í gjald fyrir Frístundasel/Frístundafjör hjá börnum í 1. og 2. bekk og kemur hún þá sem lækkun upp á 2000 krónur á mánuði út veturinn eða samtals 18.000 og því er best að óska eftir því strax í upphafi vetrar. Þeir foreldrar sem óska eftir að nýta sér þetta fara inn á frístundaávísunina eftir 1. september og haka við Frístundasel viðkomandi skóla. Sumar deildir Aftureldingar munu bjóða upp á auka æfingar utan skólatíma, umfram Frístundafjör (þ.e. eftir klukkan 15:30). Fari barnið á æfingar umfram Frístundafjör, tekur sú deild sitt gjald fyrir þær æfingar sem greiðist til deildarinnar og eru þær æfingar alfarið á ábyrgð foreldra þe að koma börnum til og frá æfingum og tengjast að engu leiti Frístundaseli/Frístundafjöri.
Hvernig fer skráning fram?
Krakkar sem eru skráðir í Frístundaseli eru sjálfkrafa skráð í Frístundafjör og er gert ráð fyrir að börn í frístundaseli fari í Frístundafjör tvisvar í viku. Óski foreldri með barn í frístundaseli eftir því að það fari ekki í Frístundafjör þarf að láta forstöðumann viðkomandi Frístundasels vita með því að senda skilaboð í gegnum íbúagátt undir málin mín.
Hvað með æfingafatnað?
Best er að barnið sé klætt þægilegum fatnaði eins og íþróttagalla eða öðrum álíka fatnaði þá daga sem Frístundafjör er .
Hver heldur utan um Frístundafjörið?
Ráðinn hefur verið yfirþjálfari með íþróttakennaramenntun sem mun sjá til þess að dagurinn gangi vel fyrir sig. Hann mun sjá um alla skipulagningu og samþættingu á milli deilda. Hann starfar í nánu samstarfi við forstöðumenn Frístundaseljanna.
Leit
Mynd








