Mánudaginn 20. febrúar er bolludagur. Þá hefur verið sú hefð að nemendur mega koma með bollu í skólann til að borða í nestinu.
Miðvikudaginn 22. febrúar er öskudagur. Þetta er skóladagur og eru nemendur og starfsfólk hvatt til að koma í búningum í skólann.
Sund fellur niður þennan dag og ekki þarf að mæta með leikfimisföt heldur verða þessir tímar með öðru sniði en vanalega.
Stundatafla er brotin upp með öskudagsballi og kóngadansi fyrir alla árganga skólans.
Í hádegismat á öskudag verður pizza og íspinni í eftirrétt og geta þeir sem ekki eru skráðir í mötuneytið skráð sig sérstaklega þennan dag. Skráð er hjá ritara og þar er tekið á móti greiðslu, kr. 500.fyrir föstudaginn 17.febrúar.
Allri kennslu lýkur kl 13:20 þennan dag. Mælst hefur verið til þess að fyrirtæki í Mosfellsbæ byrji ekki að gefa sælgæti/gjafir fyrr en eftir þennan tíma.
ATH. Að ekki verða gefin leyfi fyrir nemendur á öskudag, nema að um sérstakar ástæður sé að ræða.
Nemendur sem skráðir eru í frístundasel fara þangað eftir kennslu. Þeir foreldrar sem vilja fá leyfi fyrir þau börn sem sækja frístundasel þurfa að hafa samband við Ágústu forstöðumann frístundasels í síma 896-2682 eða í tölvupósti agusta@lagafellsskoli.is fyrir kl. 12 á öskudaginn.
