Beint á leiđarkerfi vefsins
Lágafellsskóli

Fréttir Lágafellsskóla

19.9.2009

Marita frćđsla

Fræðsla um fíkniefni og skaðsemi þeirra

Marita fræðsla fyrir nemendur í 7. 8. 9. og 10. bekk og foreldra/forráðamenn þeirra

 

Fundir fyrir foreldra/forráðamenn eru eftirfarandi:

 

Mánud. 21. sept. kl. 20:00 - foreldrar/forráðamenn nemenda í 7. bekk

Þriðjud. 22. sept. kl. 20:00 - foreldrar/forráðamenn nemenda í 8. og 9. bekk

Miðvikud. 23. sept. kl. 20:00 - foreldrar/forráðamenn og nemendur í 10. bekk

 

Fræðslan verður haldin í sal Lágafellsskóla.  

 

Smelltu hér til að lesa nánar um Marita fræðsluna.

19.9.2009

Norrćna skólahlaupiđ myndir

Skolahlaup

Nýjar myndir frá Norræna skólahlaupinu eru komnar á vefinn.

Smelltu hér til að skoða fleiri myndir.

 

19.9.2009

Bráđger og námsfús börn í 6.-10.bekk

Námskeið í Opna háskólanum fyrir nemendur í 6.-10.bekk. Sjá nánar hér og einnig á flipanum til vinstri undir frístundatilboð.

15.9.2009

Leiklist

Skráning á leiklistanámskeið hjá Leynileikhúsinu stendur yfir. Sjá nánar http://www.lagafellsskoli.is/fristundatilbod---auglysingar/leiklist---leynileikhusid/

15.9.2009

Innflúensufaraldur

Viðbragðsáætlun Lágafellsskóla vegna innflúensufaraldurs er komin inn á heimsíðuna. Smella hér til að sjá nánar.

14.9.2009

Samrćmd könnunarpróf

Ágætu foreldrar/forráðamenn nemenda í 4. 7. og 10. bekk


Dagana 14.-16. sep. munu nemendur í 10.bekk þreyta samræmd könnunarpróf í íslensku, ensku og stærðfræði en 17. og 18. sep. munu nemendur í 4. bekk og 7. bekk þreyta samræmd könnunarpróf í  íslensku og stærðfræði. .

Dagsetningar samræmdra prófa í 4, 7. og 10. bekk haustið 2009:

 10.bekkur      
 Íslenska  Mánudagur 14. sep.  kl. 9:00 - 12:00
 Enska  Þriðjudagur 15. sep.  kl. 9:00 - 12:00
 Stærðfræði  miðvikudagur    16. sep..  kl. 9:00 - 12:00
 4. og 7. bekkur      
 Íslenska  fimmtudagur 17. sep.

 kl. 09:00 - 12:00

 Stærðfræði  föstudagur 18. sep.  kl. 09:00 - 12:00
       

Nánari upplýsingar má finna inn á www.namsmat.is og einnig http://www.namsmat.is/vefur/samr_prof/grunnskolar/10framkvamd.html

 

10.9.2009

Norrćna skólahlaupiđ

Nemendur skólans í 3-.10. bekk tóku þátt í Norræna skólahlaupinu miðvikudaginn 9/9 og fór hlaupið fram á sama tíma á öllum Norðurlöndunum.  Keppni var á milli bekkja um hvað bekkur hlypi flesta kílómetra miða við fjölda nemenda.  Nemendur gátu valið um að hlaupa 2,5, 5 eða 10.km. 

8.HKS, 7.AH, og 5.RG voru jöfn í efsta sæti en í þeim bekkjum hlupu allir nemendur 10 km. 

Nemendur skólans stóðu sig mjög vel og lögðu sig fram við að gera sitt besta en markmið hlaupsins var fyrst og fremst að fá sem flesta til að vera með og hafa gaman af.  Við erum ótrúlega stolt af nemendum okkar sem náðu þeim frábæra árangri að hlaupa samanlagt 4122 km þennan dag.  Glæsilegur árangur !

  Meðaltal pr. nemenda í bekknum
10.SÓ 8.45 km 9. ÝÞ 5.58 km 8.HKS 10 km
10.SG 6.81 km 9.GG 7.94 km 8.IÓ 7.5 km
10.SE 3.40 km 9.AÁ 5.23 km 8.FS 9.75 km
8.-10.SA 5.0 km        
7.AH 10. km 6.LÞ 8.61 km 5.RG 10 km
7.GEH 9.41 km 6.JH 9.47 km 5.HS 8.59 km
7.DB 9.64 km 6.EB 9.77 km 5.HÁ 9.31 km
7.AB 9.66 km     5.ÁV 8.68 km
4.LT 8.91 km 3.SH 8.15 km
4.JL 9.09 km 3.KI 7.75 km
4.IR 8.92 km 3.BI 8.68 km
4.BIG 9.07 km        

8.9.2009

Stefna Mosfellsbćjar í skólamötuneytum

 

Verkefnið "Allt hefur áhrif einkum við sjálf" hefur verið í gangi um nokkurt skeið í Mosfellsbæ.
Aðal markmið verkefnisins er: "Að stuðla að heilbrigðum lífsháttum barna, ungs fólks og fjölskyldna þeirra með áherslu á aukna hreyfingu og bætt mataræði".

 

Í því sambandi er vert að minna á skólamötuneytin og samþykkta stefnu Mosfellsbæjar - við framboð matar í mötuneytum leik- og grunnskóla bæjarins.

 

Smelltu hér til að lesa stefnuna.

 

4.9.2009

Frestun á námsefniskynningu í 1.bekk

Kynningarkvöld fyrir foreldra og forráðamanna nemenda í 1.bekk sem vera átti 10.sep. er frestað um viku eða til 17.sep.

2.9.2009

Upplýsingar vegna innflúensufaraldurs

Sóttvarnalæknir og Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra hafa útbúið upplýsngabæklinga með ráðum til að draga úr smithættu A(H1N1) innflúensunnar.

 

Smelltu hér til að skoða bæklingana.

 

26.8.2009

Lágafellsskóli settur í 9. sinn

 Lágafellsskóli settur í 9. sinn

 

Lágafellsskóli var settur í dag við hátíðlega athöfn.

 

Eftirvænting og tilhlökkun til að takast á við spennandi verkefni vetrarins var augljós bæði hjá nemendum og starfsfólki.   

 

 

 

 

Smelltu hér til að skoða myndir.

11.8.2009

Skólasetning í Lágafellsskóla haustiđ 2009

 

Skólasetning þriðjudaginn 25. ágúst í hátíðarsal skólans 

 

2. bekkur kl. 9:00

 

3. bekkur kl. 9:30

 

4. bekkur  kl. 10:00

 

5. bekkur kl. 10:30

 

6. og 7. bekkur kl. 11:00

 

8. og 9. bekkur kl. 12:00

 

10. bekkur kl. 13:00 

 

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá hjá 2. - 10. bekk miðvikudaginn 26. ágúst. Nemendur 1. bekkjar verða boðaðir skriflega til viðtals við kennara sinn þriðjudaginn 25. ágúst og miðvikudaginn 26. ágúst. Kennsla 1. bekkjar hefst  samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 27. ágúst. Frístundasel opnar miðvikudaginn 26. ágúst. 

29.7.2009

Innkaupalistar fyrir skólaáriđ 2009-2010

 

Innkaupalistarnir fyrir skólaárið 2009-2010 eru komnir á vefinn.

Smelltu hérna til að skoða þá nánar.

 

 

29.6.2009

Skráning nemenda í Frístundasel, mataráskrift og ávaxtabita.

Opnað verður fyrir umsóknir í Frístundaselið þann 1. ágúst  og skal skráningu lokið 20. ágúst.

Sækja þarf um vistun í Frístundaselinu í gegnum ÍBÚAGÁTT Mosfellsbæjar á síðu bæjarins https://ibuagatt.mosfellsbaer.is/oneportal/login.aspx .  Þeir sem hyggjast skrá börn sín í áskrift í hádegismat eða ávaxtabita sækja einnig um  í gegnum ÍBÚAGÁTT Mosfellsbæjar. Sú skráning fer fram  10. – 20. ágúst. Ávaxtabiti verður seldur í áskrift til nemenda í 1.-7. bekk skólans.

26.6.2009

Kćru foreldrar/forráđamenn vćntanlegra 1.bekkinga í Lágafellsskóla

Til upplýsinga varðandi skólabyrjun nemenda í 1. bekk:   

Nemendum og foreldrum þeirra og/eða forráðamönnum verður boðið að koma í skólaviðtal dagana 25. eða 26. ágúst. Skóli samkvæmt stundaskrá mun síðan hefjast 27. ágúst '09.

8.6.2009

Lágafellsskóla slitiđ í 8 sinn

Skólaslit

 

Föstudaginn 5. júní var Lágafellsskóla slitið í 8 sinn. Nemendur mættu ásamt foreldrum/forráðamönnum í hátíðarsal skólans og hlustuðu á nokkrar ræður. Að því loknu fóru þeir í skólastofur með umsjónarkennurum sem afhenti þeim einkunnaspjöldin. 

 

 

Smelltu hér til að skoða fleiri myndir frá skólaslitunum.

6.6.2009

Lágafellsleikar

Lágafellsleikar 

Dagana 4. og 5. júní héldum við hina árlegu Lágafellsleika. Nemendur og starfsfólk voru úti við í allskonar þrautum og leikjum. Nokkrar bekkjardeildir gengu líka á fjöll.

Leikunum lauk með fótboltaleik á milli kennara og nemenda 8. bekkja og grillveislu. Allir fengu pulsu og svaladrykk og skemmtu sér konunglega í góða veðrinu.

 

Smelltu hér til að skoða fleiri myndir. (fleiri myndir eru væntanlegar)

5.6.2009

Útskrift 10. bekkja

10. bekkur útskriftÍ gær fimmtudaginn 4. júní fór fram útskrift nemenda í 10. bekk. Athöfnin var hin glæsilegasta og heppnaðist í alla staði vel. Nemendur mættu ásamt foreldrum/forráðamönnum, hlýddu á ræður og gæddu sér á gómsætum veitingum sem foreldrar komu með.

 

Þar sem dux skólans gat ekki verið viðstödd útskriftina, af því hún var að leika í söngleiknum Söngvaseiði, fluttist athöfnin niður á stóra sviðið í Borgarleikhúsinu. Þar voru mætt Jóhanna Magnúsdóttir, skólastjóri, Sesselja Gunnarsdóttir, deildarstjóri, Steinn Ólafsson, umsjónarkennari og Bjarndís Jónsdóttir, upplýsingatæknikennari og afhentu henni verðlaunin sem hún hafði unnið til og árbókina.

 

Við óskum nemendum til hamingju með útskriftina og velfarnaðar í framtíðinni.  

 

Smelltu hér til að skoða fleiri myndir frá útskriftinni.

4.6.2009

Frjálsíţróttadagur ađ Varmá

Frjálsíþróttadagur að Varmá

 

Þann 29. maí fór fram frjálsíþróttakeppni milli eldrideildar Lágafellsskóla og Varmárskóla. Allir skemmtu sér mjög vel og var þátttaka góð.

 

Smelltu hér til að skoða fleiri myndir.

28.5.2009

Lágafellsleikar 2009

Fimmtudaginn 4. júní og föstudaginn 5. júní eru Lágafellsleikar í Lágafellsskóla. Þá verður útivist - hreyfing og skemmtun í skólanum. Skóladagurinn hefst kl. 8:30 og lýkur kl. 13:30 þessa tvo daga. Báða dagana verður gæsla frá 8:00 - 8:30. Fimmtudaginn 4. júní verður einnig gæsla fyrir þá sem það vilja frá 13:30 til 14:00. Föstudaginn 5. júní eru skólaslit og verður ekki gæsla eftir 13:30 og Frístundasel er ekki opið þann dag.

 

Skólaslit eru sem hér segir: 

 

1. bekkur kl. 16:00

2. og 3. bekkur kl. 16:30

4. bekkur kl. 17:00

5.-7. bekkur kl. 17:30

8.-9. bekkur kl. 18:00

 

28.5.2009

5. árgangur fór á Ţingvelli

5. bekkur_tingvellir 

Í yndislegu veðri fór 5.bekkur í vorferð á Þingvelli 26. maí sem heppnaðist í alla staði mjög vel.  Þar tók Einar í fræðslumiðstöðinni á móti okkur og fræddi okkur um sögu Þingvalla og fleira. Einar er skemmtilegur leiðsögumaður og náði hann vel til barnanna.  Við fórum í gönguferð og skoðuðum helstu staðina og í lokin grilluðum við pylsur.  Nemendur skemmtu sér vel og voru skólanum til sóma.

 

Smelltu hér til að skoða fleiri myndir.

22.5.2009

Ný lög um náms- og starfsráđgjafa

Þann 3. apríl 2009 setti Alþingi lög um náms- og starfsráðgjafa. Samtökin heimili og skóli ásamt félagi Náms- og starfsráðgjafa sendu öllum foreldrafélögum bréf þar sem þau vilja vekja athygli á þessum lögum.

 

Smelltu hér til að lesa bréfið.

20.5.2009

Frá Frćđasetri

Vil minna á að allir eiga að vera skuldlausir við safnið í lok skólans.

Nemendur í unglingadeild eru sérstakleg minntir á að allar námsbækur eru eign skólans og þeim á að skila.

 

Takk fyrir veturinn

Aðalbjörg

20.5.2009

Ađalfundur Foreldrafélags Lágafellsskóla

 

Aðalfundur Foreldrafélags Lágafellsskóla FFLS verður haldinn þriðjudaginn 26. maí 2009 kl. 19.30 í sal Lágafellsskóla.

 

Smelltu hér til að skoða dagskránna.

20.5.2009

2. árgangur heimsótti Ţjóđmenningarhús

2. bekkur_þjóðmenningarhús

 

Nú á vordögum fóru börnin í 2. bekk í bæjarferð. Þá var haldið af stað niður í miðbæ Reykjavíkur til að skoða sýningu í Þjóðmenningarhúsinu.

 

Sýningin heitir "Að spyrja Náttúruna" og er á vegum náttúrugripasafnsins. Þar fengu þau að sjá alls kyns uppstoppuð dýr frá öllum heimshornum. Vöktu þau mikla athygli barnanna enda var þar að sjá tígrísdýr, krókódíla, þó nokkra apa og margskonar fugla svo lítið eitt sé nefnt.

 

Smelltu hér til að skoða fleiri myndir.

18.5.2009

Rafrćnt einelti

Heimili og skóli - landssamtök foreldra, vekja athygli á því að í
Fréttaaukanum á  RÚV var fjallað um rafrænt einelti.
Við hvetjum allt skólafólk, nemendur og foreldra til þess að horfa á
þátttinn. http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4465334/2009/05/17/ 

18.5.2009

Foreldrarölt

Foreldrafélagið hefur nú skipulagt foreldrarölt til loka skólaársins og er gert ráð fyrir þátttöku foreldra barna í 8. - 10. bekk skólans öll laugardagskvöld en foreldrar barna í Varmárskóla rölta á föstudagskvöldum.

 

Bekkjarfulltrúar 8. - 10. bekkjar verða í forsvari fyrir hópinn og bera ábyrgð á þeim kvöldum sem þeim er úthlutað. Ráðgert er að  5 foreldrar a.m.k.  rölti saman í hvert sinn.  Þetta er hressandi göngutúr í góðra manna hópi og í góðum tilgangi.

 

Smelltu hér til að sjá skipulagið.

18.5.2009

Lokaball - Myndir

LokaballKomnar eru nýjar myndir frá lokaballi eldrideildar 11. maí sl.

 

Smelltu hér til að skoða fleiri myndir.

16.5.2009

Skólaţing í Lágafellsskóla

Skólaþing 

Mikil og góð þátttaka var á skólaþinginu sem haldið var 16. maí. Margar góðar hugmyndir varðandi nýja skólastefnu Mosfellsbæjar kviknuðu.

 

Skólahljómsveit Mosfellsbæjar tók á móti gestum úti á skólalóð í sólskinsviðri. Einnig sungu börn frá leikskólanum Reykjakoti fyrir viðstadda.

 

Smelltu hér til að skoða fleiri myndir.

15.5.2009

Laxnessinn 2009

Lokakeppnin í Laxnessnum 2009 í 6.árgangi skólans fór fram í hátíðarsalnum fös. 15.maí. 16 glæsilegir nemendur lása snildarvel og var erfitt fyrir dómnefndina að gera upp hug sinn. Allir lesarar fengur viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna og sigurvegarinn hlaut bikar til eignar ásamt bók Halldórs Laxness, Íslandsklukkuna. Sigurvegari var Ragnhildur Hjartardóttir í 6-AB. Til hamingju með sigurinn.

Allir lesarar


Slóđin ţín:

Fréttir

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta og lesblinda Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré

Mynd

Samvera - Samvinna - Samkennd