|
Forvarnardagurinn verður haldinn í þriðja sinn næstkomandi fimmtudag, 6. nóvember, um land allt. Forvarnardagurinn er haldinn að frumkvæði forseta Íslands í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga, Íþrótta- og ólympíusamband Íslands, Bandalag íslenskra skáta, Ungmennafélag Íslands, ÍSÍ, auk Reykjavíkurborgar, Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík. Actavis er aðalstyrktaraðili dagsins.
Að venju er dagskráin miðuð við nemendur í 9. bekkjum grunnskóla landsins sem tekið hafa öflugan og virkan þátt í verkefnum dagsins. Á heimasíðu verkefnisins www.forvarnardagur.is má m.a. finna skýrslu með samanteknum niðurstöðum Forvarnardagsins 2007, ávarp forseta Íslands auk kynningarmyndbands dagsins, upplýsingum um ratleik og fleira áhugavert. |
Nemendur í 3. bekk mættu í skólann í dag í búningum. Verið var að verðlauna þau af því þau voru svo prúð og hljóðlát á göngum skólans á meðan samræmduprófin í 4. og 7. bekk stóðu yfir.
Stjórn foreldrafélags Lágafellsskóla vill í vetrarbyrjun minna á útivistartíma barna og unglinga.
Börn yngri en 12 ára mega vera úti til 20 á kvöldin.
Börn á aldrinum 13 til 16 ára mega vera úti til 22 á kvöldin.
Mikilvægt er að samstaða ríki um að virða útivistartímann.
Kveðja frá stjórn foreldrafélagsins.
Aðilar frá Maritafræðslunni hafa verið hér í skólanum 20.-21.okt. með fræðslu fyrir nemendur í 7.-10.bekk.
Maríta á Íslandi er forvarnasvið Samhjálpar. Aðalverkefni er samstarf á vettvangi forvarnafélagsins Hættu áður en þú byrjar er varðar fræðslu um skaðsemi fíkniefna.Samstarfsaðilar Samhjálpar í skólafræðslunni eru Forvarna- og fræðsludeild Lögreglunnar í Reykjavík.
Fræðslufulltrúi Hættu áður en þú byrjar er Magnús Stefánsson magnus@samhjalp.is s. 897 1759. Unglingar í vanda og / eða foreldrar þeirra, geta pantað viðtal hjá Magnúsi á göngudeild Samjálpar í síma 561 1000.
Sjá nánar á http://marita.is/
Foreldrar eiga það sameiginlegt að vilja að börnum þeirra líði vel. Mikilvægt er fyrir okkur öll að staldra við og huga að því sem eykur vellíðan barna.
Menntamálaráðuneytið hefur beitt sér fyrir samráði allra aðila sem vinna að velferð barna og unglinga með það að markmiði að veita þeim viðeigandi stuðning.
Verum óhrædd við að leita ráða í þeim erfiðleikum sem við okkur blasa. Leitum til okkar nánustu og kynnum okkur þær leiðir aðrar sem samfélagið býður upp á til stuðnings við fjölskyldur.
Háskólinn í Reykjavík býður upp á námskeið í Ólympíustærðfræði fyrir grunnskólabörn í 5. - 8. bekk, yngri nemendur geta tekið þátt hafi þau sérstakan áhuga. Ólympíustærðfræði eru þrautir sem settar eru fram í formi keppna. Þær reyna á hugmyndaflug og rökhugsun. Þetta eru skemmtileg og krefjandi verkefni fyrir þá sem hafa gaman af að glíma við þrautir og að reikna. Áhersla er lögð á ánægju af stærðfræði, innsæi og samvinnu. Bæklingar voru sendir heim með nemendum eins er hægt að skoða upplýsingar á heimasíðu námskeiðsins, www.hr.is/os
Lagafellsskóli:
5. og 6. bekkur: mánudaga kl. 15:30, stofa 303.
7. og 8. bekkur: miðvikudaga kl. 15:00, stofa 303.
Háskólinn í Reykjavík:
5. og 6. bekkur: laugardaga kl. 10:00, stofa 436 og 437.
7. og 8. bekkur: laugardaga kl. 11:00, stofa 436.
Enn vantar okkur bekkjarfulltrúa í nokkra bekki.
Vantar í bekki:
2. BI - 2. SH - 3. BIG - 4. GK - 4. HB Yngsta stig
5. EB - 5. JH - 5. JL - 6. AB - 7. HS - 7. AH Miðstig
8. AÁ - 8. ÝÞ - 8. GG - 9. LÞ - 9. FS - 10. IÓ Elsta stig
Ef þú getur komið með ábendingu um foreldra sem áhugasamir eru um samstarf heimilis og skóla þá væri það mjög vel þegið. Ábendingar sendist á netfangið foreldrafelag@lagafellsskoli.is.
Bestu kveðjur, fyrir hönd FFLS, Sævar Garðarsson
Þann 3. október hlaut Lágafellsskóli verðlaun í landskeppni e-twinning. Fulltrúar skólans í keppninni voru þær Arndís Hilmarsdóttir og Helga Sigurjónsdóttir.
Verðlaunin voru veitt fyrir verkefnið "@ni & m@te" sem Arndís Hilmarsdóttir vann með 3. bekk á síðasta skólaári.
Smelltu hér til að skoða heimasíða landskrifstofu e-twinning.
Skólavinirnir í 1. og 6. bekk fóru saman í fjöruferð á útivistardaginn. Eins og sjá má var frekar hvasst og mikil rigning. En nemendur létu það ekki á sig fá og skemmtu sér konunglega.
Á næstu dögum mun ykkur berast greiðsluseðill að upphæð 1000 kr. en á síðasta aðalfundi foreldrafélags Lágafellsskóla, sem haldinn var 19. maí 2008, var samþykkt einróma að greiða skyldi félagsgjald í foreldrafélagið. Greitt er einu sinni á ári fyrir hverja fjölskyldu óháð fjölda barna í skólanum.
Er komið að ykkur að vera bekkjarfulltrúi(ar) þetta skólaárið?
Við í foreldrafélagi Lágafellskóla höfum ákveðið þetta skólaárið að biðja áhugasama foreldra að bjóða sig fram sem bekkjarfulltrúa.
Ef svo einkennilega vill til að engin býður sig fram þurfum við að velja bekkjarfulltrúa eftir stafrófsröð barna ykkar í bekknum.
Nýjar myndir eru komnar af nememdum 3. bekkja þar sem þau eru í hringekju (valið þeirra er kallað hringekja).
Iðjuþjálfar komu í heimsókn í 4. bekk í síðustu viku.
Þeir fræddu krakkana um skólatöskur, vigtuðu krakkana og töskurnar þeirra og gáfu þeim ráð hvernig best sé að raða í töskuna og hversu þung hún má vera. Einnig gáfu þeir kennurum og krökkunum hugmyndir um það hvernig borðin og stólarnir eiga að vera stillt fyrir hvern og einn.
Þetta var mjög skemmtileg heimsókn og þökkum við þeim fyrir komuna.
Hætt var við að fara í Þórsmörk vegna vatnavaxta undanfarna daga. Þess í stað förum við í Breiðabliksskálann í Bláfjöllum og gistum þar í eina nótt.
Á dögunum bauð Lágafellsskóli foreldrum nemenda 1. bekkja á kynningarfund. Þar var kynnt starfsemi skólans, frístundasels og foreldrafélags.
Mjög góð mæting var á fundinn og að kynningu lokinni gæddu gestirnir sér á glæsilegu hlaðborði að hætti meistara Gulla.
Smelltu hér til að skoða fleiri myndir frá fundinum.
Á miðvikudagskvöldið var haldið opnunarball unglingadeildarinnar. Mikið fjör var á ballinu, allir skemmtu sér vel og voru alveg til fyrirmyndar. DJ Búi spilaði fyrir dansi.
Smelltu hér til að skoða fleiri myndir af ballinu.
Alþjóðlega verkefnið Göngum í skólann hófst í dag 10.sep. og stendur til 10.okt. Markmiðin með verkefninu eru:
að hvetja til aukinnar hreyfingar með því að ganga eða hjóla í skólann,
draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum
og efla vitundarvakningu um gönguvænt umhverfi, ferðamáta og umhverfismál.
Frekari upplýsingar má finna á síðunni http://gongumiskolann.is/
Á dögunum fóru nemendur 4. bekkja í fjöruferð. Allir skemmtu sér konunglega og voru í alla staði til fyrirmyndar.
Smelltu hér til að skoða fleiri myndir frá ferðinni.
Með nýrri útgáfu af Mentor bættist við sá möguleiki að skólar geti gefið aðstandendum aðgang að því að tilkynna veikindaforföll barna sinna á Mentor og hefur Lágafellsskóli ákveðið að opna á þennan aðgang til reynslu á þessu skólaári.
Smelltu hér til að lesa bréfið í heild.
Hinn 18. ágúst verður íbúagátt Mosfellsbæjar opnuð á www.mos.is
Þar gefst íbúum kostur á að sækja um þjónustu til sveitarfélagsins með rafrænum hætti, senda inn formleg erindi, fylgjast með framgangi sinna mála, skoða greiðslu-stöðu, koma ábendingum á framfæri og ýmislegt fleira.
Frá 18. ágúst verður einungis hægt að sækja um frístundasel og mötuneyti í gegnum íbúagáttina. Þeir sem þegar hafa sótt um á heimasíðu skólans eru vinsamlegast beðnir um að senda nýja umsókn gegnum íbúagáttina. Starfsmenn í þjónustuveri Mosfellsbæjar og hjá skólunum munu aðstoða þá sem þess óska eins og kostur er.
Það er til nokkurs að vinna því allir sem sækja um mötuneyti eða frístundasel í gegnum íbúagáttina fyrir 1. september fara í happdrættispott og vinningshafar fá fallega skólatösku eða íþróttabúning frá Aftureldingu fyrir börn sín. Þess má einnig geta að foreldrar grunnskólabarna komast beint inn á Mentor í gegnum íbúagáttina.
Hægt er að sækja um í mötuneyti og frístundasel til 31. ágúst vegna vistunar í september. Skráning í mötuneyti og frístundasel tekur gildi þegar staðfesting á vistun hefur borist í gegnum íbúagáttina og gildir þar til henni er sagt upp í gegnum íbúagáttina. Athugið að almennt þarf umsókn og uppsögn að berast í síðasta lagi 20. hvers mánaðar og tekur gildi frá og með næstu mánaðarmótun.
Í lok vikunnar verður upplýsingabæklingur um íbúagáttina sendur inn á öll heimili í bænum.
Lágafellsskóla var slitið í 7. sinn miðvikudaginn 4. júní. Nemendur mættu í sínu fínasta pússi í Hátíðarsal skólans og hlýddu á ávarp skólastjóra og deildarstjóra. Eftir það fóru nemendur með umsjónarkennurum sínum í kennslustofur og fengu afhentan vitnisburð vetrarins.
Hátíðarsalurinn var sérstaklega skreyttur vegna afhendingu Íslensku Menntaverðlaunanna daginn áður.
Smelltu hér til að skoða fleiri myndir.
Verðlauna hafar ásamt skólastjórum. Þórunn Þorsteinsdóttir, Hildur Kristín Þorvarðardóttir, Ólöf Jónasdóttir, Anna Christina Svavarsdóttir, Bryndís María Olsen, Björn Ingi Óskarsson, Maríus Árni Blomsterberg.
Smelltu hér til að skoða fleiri myndir frá útskriftinni.
Þann 3. júní 2008 afhenti hr. Ólafur Ragnar Grímsson Íslensku Menntaverðlaunin. Afhendingin fór fram við hátíðlega athöfn í hátíðarsal skólans. Um 300 gestir voru viðstaddir afhendinguna.
Smelltu hér til að skoða fleiri myndir.
Þriðjudaginn 3. júní fóru nemendur 9. bekkja í sundlaugina í Borgarnesi.
Á leiðinni heim voru snæddar samlokur í Hyrnunni.
Veðrið var frábært. Nemendur skemmtu sér konunglega og voru sjálfum sér og skólanum til sóma.
Smelltu hér til að skoða fleiri myndir úr ferðinni.
Skólaslit Lágafellsskóla verða miðvikudaginn 4.júní 2008
Kl. 08:30 8. og 9. bekkur
Kl. 09:15 6. og 7. bekkur
Kl. 10:00 5. bekkur
Kl. 10:45 3. og 4.bekkur
Kl. 11:30 1. og 2. bekkur
Útskrift 10. bekkjar kl. 20:00-21:30
Í dag mánudag 2. júní og á morgun 3. júní eru Lágafellsleikar.
2.-6. bekkur eru með dagskrá hér á Lágafellsskólasvæðinu.
7. bekkur er í leikjum á Varmárskólasvæðinu og á morgun fara þau í hjólatúr og sund.
Dagskrá Lágafellsleikanna endar svo á morgun um kl. 12 á grilli. Nemendur fara svo heim um kl. 13.
8. bekkur er með spiladag í dag og á morgun fara þau á slóðir Kjalnesingasögu.
9. bekkur fara í ratleik um Reykjavík í dag og á morgun fara þau í sund í Borgarneslaug.
10. bekkur er í fríi en eru velkomin í grillið kl. 12 á morgun.
Þann 29. maí fóru nemendur 9. SÓ ásamt tveimur súper mömmum í hjólreiðatúr. Ferðinni var heitið í Nauthólsvík. Þar skemmtu allir sér mjög vel í ýmsum boltaleikjum.
Smelltu hér til að skoða fleiri myndir.
Í dag færðu nemendur 2. árgangs Sigríði Johnsen skólastjóra, kveðjugjöf.
Eftirfarandi er bréf sem nemandi las upp fyrir hana við athöfnina.
Kæra Sigríður.
Við viljum þakka þér fyrir árin sem við höfum átt saman og þú verið skólastjórinn okkar. Við bjuggum til litríkan trefil fyrir þig sem þú getur notað til að hlýja þér og þá mannstu eftir okkur.
Kær kveðja frá öllum í 2. árgangi.
Smelltu hér til að skoða fleiri myndir.
Á dögunum fóru nemendur 4. bekkja í heimsókn í Árbæjarsafnið. Þar skoðuðu þau meðal annars Gamla Árbæ, fóru í leiki og skemmtu sér mjög vel. Nemendur voru einstaklega prúðir og voru skólanum og sjálfum sér til sóma.
Smelltu hér til að skoða fleiri myndir.
