Það kemur sjálfboðaliði frá Rauða krossinum og sækir krakkana í skólann. Þau heimsækja síðan gamla fólkið á Eirhömrum og stoppa þar í einn og hálfan tíma. Nemendum er frjálst að taka þátt í þessum heimsóknum en 6 nemendur fara hverju sinni. Við heimsækjum Eirhamra tvisvar á þessari önn.
Þetta er skemmtilegt samstarf þar sem bilið er brúað á milli ungu og eldri kynslóðarinnar.








