logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Fréttir eftir árum

Skólaslit í Lágafellsskóla vorið 2019 ​

31/05/19
Skólaslit verða hjá 1. – 9. bekk skólans miðvikudaginn 5. júní. Nemendur í 3. – 9. bekk mæta til stuttrar athafnar í sal skólans og að henni lokinni fara þeir í sína stofu með umsjónarkennara, fá afhentan vitnisburð og kveðja kennara sinn. Nemendur fara heim að þessu loknu. Foreldrar eru hjartanlega velkomnir.
Meira ...

Gjöf frá Foreldrafélagi Lágafellsskóla

22/05/19Gjöf frá Foreldrafélagi Lágafellsskóla
Stjórn foreldrafélag Lágafellsskóla samþykkti að styrkja bókasafn skólans með peningagjöf að fjárhæð 150 þúsund krónur. Stjórn foreldrafélagsins vill þannig fyrir hönd foreldra hvetja stjórnendur og starfsfólk til að halda áfram að bæta við bókakost skólans og hvetja þannig til yndislesturs barna og unglinga í Lágafellsskóla
Meira ...

Vorhátíð 5 ára og 1. - 6. bekkjar

13/05/19
Miðvikudaginn 15.maí verður haldin vorhátíð 5 ára nemenda á Höfðabergi og nemenda í 1.- 6. bekk Lágafellsskóla. Nemendur hafa undanfarið æft skemmtiatriði sem flutt verða á sviði skólans og er foreldrum og systkinum sérstaklega boðið að koma og njóta þessara skemmtiatriði í hátíðarsal skólans.
Meira ...

Skólahljómsveit Mosfellsbæjar í heimsókn

10/05/19Skólahljómsveit Mosfellsbæjar í heimsókn
Í dag heimsótti Skólahljómsveit Mosfellsbæjar okkur í Lágafellsskóla. Börn úr 2.- 4. bekk hlustuðu á frábæra tónleika og kynningu á hinum ýmsu hljóðfærum. Börn voru hvött til að sækja um í skólahljómsveitina fyrir næsta vetur, ef þau hefðu áhuga. Hljómsveitin stóð sig afar vel og vakti mikla hrifningu.
Meira ...

PÁSKABINGÓ LAUGARDAGINN 13/4 KL. 13

12/04/19PÁSKABINGÓ LAUGARDAGINN 13/4  KL. 13
Kaffiveitingar verða til sölu og er salan liður í fjáröflun 10. bekkinga. Hvetjum ykkur eindregið til að styðja nemendur og athugið að eingöngu er hægt að greiða með peningum eða millifærslu í heimabanka.
Meira ...

Litla upplestrarkeppnin

12/04/19Litla upplestrarkeppnin
Litla upplestrarkeppnin fór fram dagana 2.-5.apríl í 4.bekkjum Lágafellsskóla.
Meira ...

Upplestrarkeppnin Laxnessinn

12/04/19Upplestrarkeppnin Laxnessinn
Föstudaginn 12.apríl fór fram hin árlega upplestrarkeppni Laxnessinn í 6.bekk Lágafellsskóla.
Meira ...

Laus störf við skólann næsta haust

12/04/19
Við viljum vekja athygli á lausum störfum við skólann næsta haust. Sjá á ráðningarvef bæjarins mos.i s og alfred.is Með því að smella á fyrirsögina er hægt að komast beint inn á þessar síður.
Meira ...

SKÍÐAFERÐ AFLÝST VEGNA VEÐURS

04/04/19
Bláfjöll verða lokuð í dag fim., 4/4. Kennsla skv. stundaskrá nem. og kennara frá 10:40
Meira ...

Lokaumferð Stóru upplestrarkeppninnar 2019

29/03/19Lokaumferð Stóru upplestrarkeppninnar 2019
Stóra upplestrarkeppnin var haldin í 21. skipti í Mosfellsbæ fim. 28/3. Keppnin í ár var haldin í Varmárskóla. Til leiks voru mættir 10 framúrskarandi og hæfileikaríkir upplesarar frá Lágafells- og Varmárskóla. Keppendur fyrir hönd Lágafellsskóla voru: Alex Máni Hrannarsson 7.-IRÍ, Aron Valur Gunnlaugsson 7.-JLS, Eydís Ósk Sævarsdóttir 7.-IRÍ, Katrín Ósk Davíðsdóttir 7.-JÞ og Þórey Kristjana Björnsdóttir 7.-JLS. Þjálfari þeirra var Ýr Þórðardóttir
Meira ...

Síða 3 af 4

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira