logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Jólamatur 10/12 og pizza 20/12

03/12/2021

Sælir foreldrar og aðstandendur nemenda í Lágafellsskóla

Jólamatur nemenda verður föstudaginn 10.desember. Í matinn verður: Jólaskinka með paprikukrydduðum kartöflum, grænar baunir, rauðkál og brún sósa. Til drykkjar er ávaxtasafi (appelsínu- eða eplasafi) og íspinni í desert.

Þeir sem ekki eru skráðir í mötuneyti geta keypt sér staka máltíð á 600 kr. og greiða fyrir það hjá ritara, fyrir miðvikudaginn 8.desember, en einnig má leggja inn á reikning 549-26-2240 kt. 500904-2240 og passa þá að skrá bekk og nafn nemenda sem verið er að kaupa fyrir og senda staðfestingu á asta@lagafellsskoli.is

Þegar stofujólin eru hjá 1. – 7. bekk mánudaginn 20.desember er pizza í matinn og það sama gildir þann daginn að þeir nemendur sem ekki eru í mötuneytisáskrift geta keypt þessa máltíð staka og greiða þá á sama hátt fyrir hana.

Greiða má fyrir báðar máltíðirnar í einu fyrir 9.desember ef það hentar betur.

549-26-2240 kt. 500904-2240 staðfesting á asta@lagafellsskoli.is

 

Jólakveðja 

Starfsmenn Lágafellsskóla

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira