logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Skreytingadagur í Lágafellsskóla föstudaginn 26.nóvember 2021

24/11/2021
Skreytingadagur í Lágafellsskóla föstudaginn 26.nóvember 2021

Skreytingadagurinn okkar verður aftur óhefðbundinn í ár að því leyti að ekki er mögulegt að taka á móti foreldrum inn í skólann.

Nemendur og starfsfólk mun gera sér glaðan dag, skreyta stofur, föndra, njóta samveru, drekka súkkulaði og maula á smákökum.
Skólinn býður heitt súkkulaði en nemendur koma með smákökur að heiman. Minnum á að skólinn okkar er hnetulaus.

Allir árgangar skólans föndra á sama tíma þ.e. frá kl. 8:10 – 9:30, íþróttir, sund, list- og verkgreinar falla því niður á þessum tíma en þess í stað mæta nemendur í sínar umsjónarstofur.

Allir sem vilja og geta eru hvattir til að mæta jólalegir þennan dag t.d. með jólahúfu eða í jólapeysu.

Með jólakveðju frá starfsmönnum Lágafellsskóla
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira