logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Íþrótta- og sundkennsla til 19.okt.

08/10/2020

Ágætu foreldra/forráðamenn barna í Lágafellsskóla

Sóttvarnalæknir og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hafa lagt áherslu á að stöðva íþróttir og líkamsrækt á höfuðborgarsvæðinu næstu 2 vikurnar til að koma í veg fyrir hópamyndun, nánd og blöndun aðila úr ólíkum áttum sem eykur líkur á dreifingu smits og hugsanlega auknu álagi á heilbrigðiskerfið.

Skóla- og íþróttasvið allra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hafa í samráði við almannavarnir höfuðborgarsvæðisins tekið þá ákvörðun að stöðva allt íþróttastarf og kennslu sem fram fer innandyra á þeirra vegum frá og með deginum í dag til 19. október. Öll íþróttakennsla mun fara fram utandyra að teknu tilliti til ítrustu sóttvarna. Sundlaugarnar verða enn fremur lokaðar og skólasund fellur því niður.

Með þessum aðgerðum er verið að sýna samstöðu með aðgerðum ÍSÍ varðandi takmarkanir á íþróttahaldi á höfuðborgarsvæðinu. Verið er að slá skjaldborg um börn, starfsfólk grunnskóla og skólastarf.
Andstæðingurinn er veiran og það er mikilvægt að allir sýni samstöðu og leggi allt á vogarskálarnar til að fækka smitum.

Þetta þýðir fyrir okkur hér í Lágafellskóla að þegar nemendur eiga að vera í íþróttum og sundi munu þau að koma klædd eftir veðri til þess að geta tekið þátt í íþróttum utandyra.

Nemendur mæta við anddyrið hjá íþróttahúsinu við Lágafellsskóla þar sem íþróttakennarar munu taka á móti hópunum og á þetta einnig við um nemendur á Höfðabergi.

Með von um skilning og samvinnu

Lísa Greipsson
skólastjóri

 


Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira