logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Vegna fyrirhugaðs verkfalls

06/03/2020

Til foreldra og forráðamanna barna í Lágafellsskóla

Boðuð hafa verið verkföll aðildarfélaga BSRB næstu vikurnar. Um er að ræða tímabundin verkföll ákveðna daga til að byrja með og síðan ótímabundin verkföll frá 15. apríl (sjá yfirlit www.bsrb.is). Starfsmannafélag Mosfellsbæjar er innan BSRB og því eru margir starfsmenn bæjarins á leið í verkfall. 

Í skólum Mosfellsbæjar er um að ræða starfsmenn í mötuneytum/eldhúsum, skólaliða, stuðningsfulltrúa, starfsmenn og deildarstjóra á leikskólum, starfsfólk í ræstingum, umsjónarmenn fasteigna, kerfisstjóra, starfsfólk á skrifstofu og einnig fara starfsmenn íþróttamiðstöðva og félagsmiðstöðvar í verkfall.  Áhrif verkfallsins munu verða víðtæk og hafa áhrif á starfsemi allra leik- og grunnskóla í Mosfellsbæ, frístund og félagsmiðstöðvar sem og starfsemi íþróttamiðstöðva/sundlauga.

Samningaviðræður standa yfir og eru foreldrar beðnir að fylgjast vel með fréttum fjölmiðla og heimasíðum skóla. Ef verkföllum er aflýst þá mun allt skóla- og frístundastarf verða með eðlilegum hætti.

Leikskólar – Höfðaberg

  • Áformuð tímabundin verkföll ákveðna daga frá 9. mars til og með 1. apríl.
  • Áformað ótímabundið verkfall frá 15. apríl.
  • Í leikskólum verður umtalsvert skert þjónusta:
    • Opið verður á þeim deildum þar sem starfsmenn í öðrum stéttarfélögum eru við störf. Börnum verður skipt niður í hópa eftir mönnun á deildum leikskóla og verður rúllandi vistun í gangi.
    • Mötuneyti loka og því hvorki framreiddur morgunmatur né hádegismatur.
    • Þrif verða með ólíkum hætti eftir skólum þar sem misjafnt er hvort um er að ræða aðkeypta ræstingaþjónustu eða ekki. Þar sem skerðing verður á þrifum þá verður opnun á húsnæði endurskoðuð á þriðja degi en það er Heilbrigðiseftirlitsins að taka ákvarðanir um lokun húsnæðis.
    • Leikskólagjöld falla niður þann tíma sem barni er ekki boðin vistun á verkfallsdögum.

Hver og einn skólastjóri sendir út til foreldra skipulag leikskólastarfs á verkfallsdögum varðandi fyrirkomulag v/rúllandi hópa. Skipulag sent út vikulega eða þar til verkfall leysist.

Grunnskólar - Lágafellsskóli

  • Áformuð tímabundin verkföll frá 9. mars til og með 1. apríl.
  • Áformað ótímabundið verkfall frá 15. apríl.
  • Í grunnskólum verður umtalsvert skert þjónusta:
    • 1.-10.bekkur: Skólinn opnar kl. 08:10.  Kenndar verður fyrstu tvær kennslustundirnar 9.-10.mars (endurmetið í hverri viku fyrir sig ef verkfall heldur áfram) eða fram að fyrstu frímínútum.  Nemendur mæti í Lágafellsskóla í íþrótta- og sundkennslu þar sem íþróttamiðstöðvar eru lokaðar. Í frímínútum verður veruleg skerðing á gæslu sem hefur áhrif á öryggi barna og fellur því öll kennsla niður eftir fyrstu tvær kennslustundirnar að morgni eða frá kl. 09.30.
    • Athugið að samræmd próf í 9.bekk verða haldin þriðjudaginn 10.mars skv. skipulagi sem hefur verið sent út til þeirra er málið varðar.
    • Stuðningur við börn með sérþarfir verður ekki til staðar þar sem stuðningsfulltrúar koma að stuðningi.
    • Þrif verða með ólíkum hætti eftir skólum þar sem misjafnt er hvort um er að ræða aðkeypta ræstingaþjónustu eða ekki. Þar sem skerðing verður á þrifum þá verður opnun á húsnæði endurskoðuð á þriðja degi en það er Heilbrigðiseftirlitsins að taka ákvarðanir um lokun húsnæðis.
    • Mötuneyti loka og  falla gjöld niður þann tíma sem verkfall varir.

Hver og einn skólastjóri sendir út skipulag skólastarfs á verkfallsdögum.

Frístund

  • Ótímabundið verkfall frá 9. mars 2020.
  • Öll starfsemi frístundar í Lágafellsskóla fellur niður frá og með mánudeginum 9. mars og þar til boðað verkfall leysist.
  • Frístundagjöld falla niður þann tíma sem barni er ekki boðin frístundavistun.

    Hver og einn skólastjóri sendir út skipulag frístundastarfs á skóladögum.

    Félagsmiðstöðvar

  • Áformuð tímabundin verkföll frá 9. mars til og með 1. apríl.
  • Áformað ótímabundið verkfall frá 15. apríl.
  • Félagsmiðstöðin lokuð á öllum starfsstöðvum, í Varmárskóla, Lágafellsskóla og Helgafellsskóla.

Upplýsingar eru einnig birtar á heimasíðu skólans og verða uppfærðar reglulega. Ef frekari upplýsinga er óskað er hægt að senda fyrirspurn á póstfangið lisa@lagafellsskoli.is eða hringja í skólann í síma 525-9200. Vert er að taka fram að þjónusta og símsvörun á skrifstofu skólans er mjög takmörkuð ef til verkfalls kemur.

Með bestu kveðjum

Linda Udengaard framkvæmdastjóri fræðslu- og frístundasviðs

Lísa Greipsson skólastjóri  Lágafellsskóla

 

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira