logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Almennt skólahald fellur niður í Mosfellsbæ fös. 14.febrúar - Red Weather Alert – people should stay at home

13/02/2020

Almennt skólahald í Mosfellsbæ fellur niður

Rík­is­lög­reglu­stjóri hef­ur lýst yfir óvissu­stigi al­manna­varna fyr­ir allt landið vegna aftaka­veðurs á morg­un, föstu­daginn 14. febrúar.

Rauð veðurviðvörun hefur verið gefin út fyrir höfuðborgarsvæðið frá kl. 07:00 í fyrramálið til klukkan 11:00 sem þýðir að fólk á ekki að vera á ferðinni nema brýna nauðsyn beri til. 

Reglulegt skólahald fellur niður en leikskólar og grunnskólar sem og frístund verða engu að síður opin með lágmarksmönnun fyrir fólk sem þarf nauðsynlega á vistun fyrir börn sín að halda – hér er átt við fólk sem sinnir neyðarþjónustu, löggæslu, slökkvistörfum og björgunarsveitarútköllum.  Allur skólaakstur fellur niður.

Gert er ráð fyrir að veðrið gangi niður eftir kl. 15:00 samkvæmt spá sem þýðir að ýmis þjónusta raskast eða fellur niður í fyrramálið og jafnvel allan daginn.

Íþróttamiðstöðvar/sundlaugar í Mosfellsbæ og bókasafn verða lokaðar til klukkan 15:00.

Þjónustuver Mosfellsbæjar verður opið og svarar í síma.

Fólk er hvatt til þess að halda sig heima í fyrramálið og fylgjast vel með tilkynningum frá almannavörnum í fjölmiðlum. 

Staðan verður endurmetin í fyrramálið. 

Frekari upplýsingar um veðurviðvaranir á síðu Veðurstofunnar.

https://www.vedur.is/vidvaranir/svaedi/rvk

 

Red Weather Alert tomorrow – people should stay at home

The Chief of Police has declared an uncertainty for public safety for the whole country tomorrow, Friday 14. February.

A red weather alert has been issued for the greater Reykjavík area from 7 am (07:00), tomorrow morning. This means that noone should go outside unless in emergency.

All regular school activity will not be in function but schools remain open with minimum staff for people who need to work in emergency operations, such as police, ambulances, fire departments and rescue operations.

The big storm will go down after 3 pm. (15:00) which means that most services will be disrupted tomorrow morning and even for the whole day.

People are urged to stay at home tomorrow and follow instructions from the authorities.

People should be able to go outside after 3 pm.

If necessary new announcements will be sent out tomorrow morning.

All schools will be closed except for those who work in emergency services.

Swimming pools will be closed until 3 pm.

 

 

 

 

 

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira