logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Skólahald v/veðurs sett inn 9.des kl. 21:00

09/12/2019

Allir heim fyrir klukkan 15 á morgun

Í Mosfellsbæ mun skóla-, frístunda og félagsmiðstöðvastarf raskast frá hádegi á morgun, þriðjudaginn 10. desember vegna óveðurs sem spáð er að gangi yfir höfuðborgarsvæðið.

Enginn ætti að vera á ferli eftir klukkan 15 á morgun nema brýn nauðsyn beri til.

Gefin hefur verið út appelsínugul viðvörun vegna óveðursins sem spáð er.

Foreldrar og forráðamenn barna eru beðnir um að sækja börn sín strax að skóladegi loknum til að tryggt sé að allir, börn, foreldar og starfsfólk geti náð heim til sín áður en veðrið skellur á.

Foreldrar leikskólabarna sæki börn sín fyrir kl. 15.  

Allt frístunda- og félagsmiðstöðvastarf í Mosfellsbæ fellur niður svo og starf Tónlistarskóla og skólahljómsveitar. Frístund verður opin frá kl. 13:20-15:00. Þá munu íþróttamiðstöðvarnar að Lágafelli og Varmá verða lokaðar eftir kl. 14 á morgun og því fellur öll íþrótta- og sundkennsla niður eftir þann tíma.

Eldri grunnskólanemendur fara því beint heim eftir skóladag og eru foreldrar beðnir um að sjá til þess að þeir séu ekki á ferli þegar og eftir að veðrið skellur á.

Reiknað er með að síðasti skólabíll aki heimakstur kl 13:30 nema annað verði tilkynnt og þurfa foreldra að gera ráðstafnir eftir því sem við á. Akstur frístundabíls fellur alfarið niður á morgun.

Akstursþjónusta fatlaðra mun aka heim þeim skólabörnum sem þeirrar þjónustu njóta, strax að loknum skóladegi.

Lokanir stofnanna á fræðslu- og frístundasviði eru tilkomnar vegna öryggisráðstafana en enginn ætti að vera á ferli í veðri eins og spáð er.

Fólk er beðið um að fylgjast vel með veðri í fjölmiðlum og fylgja tilmælum yfirvalda.

Appelsínugul viðvörun þýðir að það séu miðlungs eða mikl­ar lík­ur á veðri sem geti valdið mikl­um sam­fé­lags­leg­um áhrif­um, tjóni eða slys­um og hugsanlega ógnað lífi og lim­um ef aðgát er ekki höfð.

 

Kveðja Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira