logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Skólasetning í hátíðarsal Lágafellsskóla fös. 23/8 fyrir 2.-10.bekk

08/08/2019

Skólasetning í hátíðarsal Lágafellsskóla fös. 23/8 fyrir 2.-10.bekk

2. bekkur kl. 09:00

3. - 4. bekkur kl. 09:30

5. bekkur kl. 10:00

6. – 7. bekkur kl. 10:30

8. -10. bekkur kl. 11:00

Skólastjóri býður nemendur velkomna og setur skólann. Deildarstjórar lesa upp nöfn nemenda sem ganga síðan til stofu með umsjónarkennara sínum.

 

Nemendur 1. bekkjar, ásamt foreldrum, mæta til viðtals við umsjónarkennara föstudaginn 23. ágúst.

Formleg skólasetning fyrir 1. bekk verður mánudag 26. ágúst í sal Lágafellsskóla kl. 08:15. Að skólasetningu lokinni verður gengið í Höfðaberg og kennsla hefst.

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá hjá 2. - 10. bekk mánudaginn 26. ágúst

 

Nemendur sem skráðir voru í mat/ávaxtabita á síðasta skólaári og ætla að halda því áfram þurfa ekki að skrá sig aftur. Þeir sem voru skráðir og ætla ekki að halda áfram þurfa að segja upp áskrift fyrir 20.ágúst. og eins þurfa nýjar umsóknir að berast fyrir 20.ágúst. Sótt er um/sagt upp á íbúagátt Mosfellsbæjar.

 

Frístundasel opnar mánudaginn 26. ágúst.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira