logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Laus störf við skólann

08/02/2019

Laus störf í Lágafellsskóla

 

Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi? Viltu vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum? Lágafellsskóli í Mosfellsbæ er heildstæður grunnskóli sem vinnur í anda uppbyggingarstefnunnar. Starfsemi skólans fer fram í tveimur byggingum þar sem 1. - 2. bekkur er staðsettur í útibúi skólans, Höfðabergi,  ásamt leikskóladeildum 5 ára barna.

Við auglýsum lausar stöður:

 

·       Kennarastaða á unglingastigi, 70% starfshlutfall. Aðalkennslugrein danska auk nokkurra tíma í stærðfræði. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í síðasta lagi 1. apríl.

 

Menntunar- og hæfnikröfur:

·       Leyfisbréf grunnskólakennara

·       Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður

·       Mjög góð færni í samvinnu, samskiptum og teymisvinnu

·       Áhugi á starfi með börnum

·       Áhugi á starfsþróun og nýjum fjölbreyttum áherslum í skólastarfi

·       Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki

 

Einnig þurfum við að ráða:

·       Skólaliða í ræstingu, gæslu og aðstoð í mötuneyti. Vinnutími 07:50 - 17:00. Til greina kemur að ráða í lægra starfshlutfall.

Menntunar- og hæfnikröfur:

·       Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi

·       Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður

·       Góð færni í samvinnu og samskiptum

·       Áhugi á starfi með börnum

·       Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki

·       Góð íslenskukunnátta

 

 

Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Upplýsingar veitir Jóhanna Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 5259200/8968230.

Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila sendist rafrænt á netfangið johannam@lagafellsskoli.is


                                          Umsóknarfrestur um stöðurnar er til 2. mars 2019.

 

Ráðið er í öll störf óháð kyni.

 

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira