logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Sumaráhrifin og lestur

27/05/2018

Sumarleyfi grunnskólabarna er handan við hornið og mörg þeirra  farin að líta hýru auga til þess að þurfa ekki að vakna snemma,  taka sig til fyrir skólann og læra heima. Íslensk grunnskólabörn eru að jafnaði í 10-11 vikna sumarfríi þar sem þau  eru laus undan stundatöflu og skólabjöllu. Þetta langa frí er eflaust mörgum kærkomið en það er hins vegar  vel rannsakað að sumarfrí nemenda hefur í för með sér ákveðna afturför fyrir nám þar sem fyrri þekking og  færni gleymist vegna þess að henni er ekki haldið við yfir  sumartímann. Þetta eru svokölluð sumaráhrif. Hvað lestrarfærni varðar getur þessi afturför numið einum til þremur mánuðum  á hverju sumri og hjá barni í 6. bekk, sem aldrei hefur lesið yfir sumartímann, getur uppsöfnuð afturför numið einu og hálfu skólaári.

Sumarfrí  eru vissulega nauðsynleg og hér er ekki mælst til þess að skipulögðu námi  sé haldið að börnum á sumrin en góð lestrarfærni liggur til grundvallar og  auðveldar nemendum allt nám svo það er ákaflega mikilvægt að henni  sé haldið við yfir sumartímann. Yngstu lesararnir, eða nemendur í 1.-4. bekk, eru sérstaklega viðkvæmir fyrir sumaráhrifunum en börn sem glíma við lestrarerfiðleika,  búa við litla lestrarmenningu heima fyrir eða eiga annað móðurmál en íslensku, eru einnig í  áhættuhópi. Góðu fréttirnar eru þær að rannsóknir sýna einnig að ekki reynist nauðsynlegt að lesa meira en fjórar til fimm bækur yfir sumarið til að viðhalda lestrarfærninni og auðvitað  leiðir mikill lestur til margs konar ávinnings fyrir skólagöngu og almenna velsæld nemenda. Sá  ávinningur birtist í bættri lestrarfærni, miklum orðaforða, bættum lesskilningi, aukinni færni  við ritun og svona mætti lengi telja. Og ekki má gleyma bókagaldrinum sem fær lesarann til að gleyma stund og stað og öðlast upplifun og reynslu af fyrirbærum sem eru misfjarlæg í tíma  og rúmi.

 

Við viljum minna á að útlán bókasafnanna, fyrir börn undir 18 ára aldri, eru ókeypis  og að starfsfólk bókasafnanna er ávallt boðið og búið að aðstoða börn og foreldra við að finna  og velja bækur sem falla að áhugasviði þeirra. Með þetta í huga vilja Samtök forstöðumanna  almenningsbókasafna og Menntamálastofnun hvetja nemendur og foreldra til lestrardáða í  sumar með því að vera dugleg að heimsækja bókasöfnin og taka til dæmis þátt í árlegum  sumarlestrarspretti eða með því að nýta sér sumarlæsisdagatal Menntamálastofnunar.

Gleðilegt lestrarsumar!

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira