logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Laus störf hjá Lágafellsskóla skólaárið 2018-19

09/05/2018

Laus störf í Lágafellsskóla skólaárið 2018-2019

Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi? Viltu vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum? Lágafellsskóli í Mosfellsbæ er heildstæður grunnskóli sem vinnur í anda uppbyggingarstefnunnar. Starfsemi skólans fer fram í tveimur byggingum þar sem 1. - 2. bekkur er staðsettur í útibúi skólans, Höfðabergi,  ásamt 5 ára leikskóladeildum.

 

KENNARAR ÓSKAST Í EFTIRTALIN STÖRF:

  • Kennari í náms- og atferlismótunarver  (100%  framtíðarstaða) – menntun í sérkennslufræðum æskileg sem og reynsla af atferlismótun
  • Kennari í sérkennslu (70% - 100% framtíðarstaða), menntun í sérkennslufræðum æskileg
  • Kennari á unglingastig – kennslugreinar íslenska og stærðfræði
  • Umsjónarkennarar á yngsta og miðstig  (80% - 100% framtíðarstöður)
  • Tónmenntakennari ( 100%) framtíðarstaða

     

    Menntunar- og hæfnikröfur í kennarastörf:

  • Leyfisbréf grunnskólakennara
  • Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
  • Mjög góð færni í samvinnu, samskiptum og teymisvinnu
  • Áhugi á starfi með börnum
  • Áhugi á starfsþróun og nýjum fjölbreyttum áherslum í skólastarfi
  • Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki

     

    EINNIG VERÐUR RÁÐIÐ Í EFTIRTALIN STÖRF:

  • Atferlisfræðingur eða aðili með uppeldisfræðimenntun og góða þekkingu og reynslu af atferlismótandi aðferðum, t.d. sálfræðingur, þroskaþjálfi (í 70-100% starf)
  • Skólaliða í Höfðaberg. Vinnutími 07:50 - 13:00 (aðstoð, gæsla og létt ræsting)
  • Stuðningsfulltrúa (í 60-100% starf)
  • Frístundaleiðbeinendur (hlutastarf) Vinnutími frá 13:00 -16:00/17:00. Möguleiki á að vinna einstaka daga.

     

    Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Menntun samkvæmt gildandi samningum, ef ekki fæst fólk með réttindi er annað skoðað
  • Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
  • Góð færni í samvinnu og samskiptum
  • Áhugi á starfi með börnum
  • Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki

 

Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Upplýsingar veitir Jóhanna Magnúsdóttir skólastjóri í síma 5259200/8968230. Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila sendist rafrænt á netfangið johannam@lagafellsskoli.is

Umsóknarfrestur um stöðurnar er til 23. maí 2018.

Við hvetjum fólk af báðum kynjum til að sækja 
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira