logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Litla upplestrarkeppnin

03/05/2018

Litla upplestrakeppnin er sett 16.nóvember ár hvert, á degi íslenskrar tungu.  Nemendur í 4.bekk Lágafellsskóla hafa tekið þátt í keppninni undanfarin átta ár eða frá upphafi hennar.  Nemendur lesa ljóð, þulur og stutta texta og æfa upplestur og vandaða framsögn.  Markmið keppninnar er að hver nemandi verði betri í dag en hann var í gær.  Haldin var lokahátíð fyrir foreldra í apríl og stigu nemendur á stokk og sýndu árangur æfinganna.  Nemendur lásu ýmist einir eða fleiri saman, jafnvel allur bekkurinn í einum kór.  Nemendur stóðu sig með stakri prýði og höfðu bæði gestir og nemendur gaman af.  Á myndinni sjást nemendur stoltir með viðurkenningarskjölin sín.  Efst á myndinni er 4.LÞ, svo 4.JKJ og neðst er 4.HES.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira