logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Ruslatínsla á skólalóðinni

02/05/2018

Nemendur í 3.bekk hafa verið að læra ýmislegt um umhverfismál síðast liðinn mánuð. Nokkrir kátir og úrræðagóðir nemendur í 3-EÓ tóku það upp hjá sjálfum sér að fá lánaða hanska og poka og nýttu svo frímínútur til að tína rusl af skólalóðinni og setja í poka. Afraksturinn var fullur plastpoki af rusli. Í kjölfarið voru fleiri nemendur sem vildu leggja sitt af mörkum og tíndu upp rusl á skólalóðinni.

Nemendur í 3-EÓ mega vera stoltir af framtaki sínu og eru öðrum nemendum góð fyrirmynd.

 

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira