logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Laus störf hjá Lágafellsskóla

31/01/2018

Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi?

Viltu vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum?

 

Myndmenntakennari óskast tímabundið  vegna veikindaforfalla í nokkrar vikur. Um 100% starf er ræða en möguleiki á lægra starfshlutfalli.

Kennara vantar á unglingastig í náttúrufræðikennslu vegna veikindaforfalla. Um hlutastarf er að ræða.

 

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Leyfisbréf grunnskólakennara
  • Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
  • Mjög góð færni í samskiptum
  • Áhugi á starfi með börnum
  • Áhugi á starfsþróun og nýjum og fjölbreyttum áherslum í skólastarfi
  • Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki

Skólaliði óskast til starfa.  Vinnutími  07:50 – 14:00

Helstu verkefni eru ræsting, gæsla með nemendum og aðstoð í mötuneyti nemenda.

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Reynsla og þekking sem nýtist í starfi.
  • Áhugi á að vinna með börnum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði.
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta

 

Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Stamos. Upplýsingar veitir Jóhanna Magnúsdóttir skólastjóri í  síma 5259200/8968230. Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila sendist rafrænt á netfangið johannam@lagafellsskoli.is

Umsóknarfrestur um stöðurnar er til 15. febrúar 2017.  

Við hvetjum fólk af báðum kynjum til að sækja um.


Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira