logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Ungt fólk 2017 Kynningarfundur fyrir foreldra nemenda í 5.-8.bekk Lágafellsskóla þann 25. janúar kl. 8:15 í sal skólans

18/01/2018

Ungt fólk 2017 


Kynningarfundur í Lágafellsskóla fim. 25. janúar kl. 8:15 í sal skólans.

Kaffi og meðlæti í upphafi fundar

Kynningarfundur á niðurstöðum könnunar sem Rannsókn og greining gerði á högum og líðan nemenda úr 5. -7. bekk og fram fór í grunnskólunum á vorönn 2017. 

Kynntar verða niðurstöður varðandi líðan nemenda í skóla, samskipti, samveru við foreldra, svefnvenjur, tölvunotkun, og fleira er áhrif hefur á vellíðan ungmenna.

Könnunin var gerð í öllum sveitarfélögum landsins á sama tíma og er það menntamálaráðuneytið sem lætur framkvæma hana. Á fundinum verða kynntar niðurstöður fyrir Mosfellsbæ í heild, höfuðborgarsvæðisins og landsins alls  sem og þróun milli ára rakin. 

Kynningin er ætluð foreldrum barna  í 5. – 8. bekk. og er það Margrét Lilja Guðmundsdóttir frá Háskóla Reykjavíkur ásamt skólaþjónustu Mosfellsbæjar sem sjá um kynninguna. Skýrslan í heild er á heimasíðum skólanna. Sjá með því að smella hér.

Fundurinn stendur til kl. 9:00 og í boði verður kaffi og rúnstykki frá kl. 8:00. 
Hvetjum foreldra eindregið til að mæta á annan hvorn fundinn og fá innsýn í áhrifaþætti í daglegu lífi barna sinna.

Með kveðju
Fræðslusvið- og frístundasvið
Mosfellsbæjar

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira