logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Laus störf hjá Lágafellsskóla á nýju ári

14/12/2017
Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi?
Viltu vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum?
Við þurfum að ráða inn nýja starfsmenn

Stuðningsfulltrúa, vinnutími 08: - 13:20 en möguleiki á vinnu í frístund fram eftir degi.
Helstu verkefni eru stuðningur við nemendur í leik og starfi.

Frístundaleiðbeinendur í hlutastörf frá kl. 13:00. Vinnutími samkomulag.
Frístundaleiðbeinendur taka þátt í skipulagningu faglegs frístundastarfs og leiðbeina börnum í leik og starfi í samvinnu við samstarfsfólk.

Skólaliða, vinnutími 07:50 – 14:00
Helstu verkefni eru ræsting, gæsla með nemendum og aðstoð í mötuneyti nemenda.

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Reynsla og þekking sem nýtist í starfi
  • Áhugi á að vinna með börnum
  • Frumkvæði og sjálfstæði
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta

Störfin eru laus frá 3. janúar 2018.

Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Stamos. Upplýsingar veitir Jóhanna Magnúsdóttir skólastjóri í síma 5259200/8968230. Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila sendist rafrænt á netfangið johannam@lagafellsskoli.is
Umsóknarfrestur um stöðurnar er til 29. desember 2017.

Við hvetjum fólk af báðum kynjum til að sækja um.

 

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira