logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Laus störf við Lágafellsskóla

01/09/2017

Lágafellsskóli Mosfellsbæ

Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi?

Viltu vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum?

Lágafellsskóli í Mosfellsbæ er heildstæður grunnskóli sem vinnur í anda uppbyggingarstefnunnar. Starfsemi skólans fer fram í tveimur byggingum þar sem 1. - 2. bekkur er staðsettur í útibúi skólans, Höfðabergi,  ásamt 5 ára leikskóladeildum.

  

Vegna veikindaforfalla vantar okkur kennara til starfa, tímabundið.

  • Umsjónarkennsla á yngsta stigi. Starfshlutfall 100% frá 5. október í nokkrar vikur
  • Stærðfræði- og náttúrufræðikennsla á unglingastigi. Starfshlutfall 100% í nokkrar vikur. Viðkomandi þarf að geta hafið störf strax

 Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Leyfisbréf grunnskólakennara
  • Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
  • Mjög góð færni í samvinnu,  samskiptum og teymisvinnu
  • Áhugi á starfi með börnum
  • Áhugi á starfsþróun og nýjum og fjölbreyttum áherslum í skólastarfi
  • Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki

  

Skólaliðar

Helstu verkefni eru ræsting, gæsla með nemendum og aðstoð í matsal nemenda. Daglegur vinnutími frá kl. 07:50 –16:00 en möguleiki er á minna starfshlutfalli. Störfin eru laus nú þegar.

Tímabundin afleysing skólaliða í mötuneytiseldhús í nokkrar vikur, vegna veikinda.

Vinnutími 08:30 – 14:00, Starfið er laust nú þegar.

 Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Reynsla og þekking sem nýtist í starfi.
  • Áhugi á að vinna með börnum
  • Frumkvæði og sjálfstæði
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta 

     

    Frístundaleiðbeinendur     óskast í Frístundasel Lágafellsskóla

    Frístundaleiðbeinendur taka þátt í skipulagningu faglegs frístundastarfs og leiðbeina börnum í leik og starfi í samvinnu við samstarfsfólk. Um hlutastörf er að ræða og vinnutími frá kl. 13:00 – 17:00 en möguleiki er á styttri vinnutíma.

    Störfin eru laus nú þegar.

     

    Menntunar- og hæfnikröfur:

     Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.

  • Áhugi á að vinna með börnum. 

  • Frumkvæði og sjálfstæði.

  • Góð færni í samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta

 Þroskaþjálfi     óskast í 60% starfshlutfall við leikskóladeildir Höfðabergs. Ráðning samkvæmt samkomulagi.

         Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Háskólamenntun á sviði þroskaþjálfunar
  • Hæfni í mannlegum samskiptum er skilyrði
  • Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
  • Þekking og reynsla af atferlismótun æskileg 

Ef ekki fæst þroskaþjálfi til starfa kemur til greina að ráða starfsmann með aðra háskólamenntun sem nýtist í starfið.

 

Laun samkvæmt kjarasamningi SNS og viðkomandi stéttarfélags. Upplýsingar um störfin veitir Jóhanna Magnúsdóttir skólastjóri í síma 5259200 eða 8968230. Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila berist með tölvupósti á netfangið  johannam@lagafellsskoli.is

 

Umsóknarfrestur um störfin er til og með 14. september 2017.

 

Við hvetjum fólk af báðum kynjum til að sækja um

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira