logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Breytt fyrirkomulag vegna mataráskriftar haustið 2017

06/07/2017

Frá og með hausti verður breytt fyrirkomulag vegna skráninga í mötuneyti og ávaxtabita í skólanum.

Allir nemendur skólans, sem nú þegar eru skráðir í mötuneyti og/eða ávaxtabita, verða sjálfkrafa skráðir frá og með hausti 2017.

Fyrir 20.ágúst þarf að sækja um í  Íbúagátt fyrir nýja nemendur og þá sem ekki hafa verið í áskrift en vilja vera það frá hausti.

Ætli nemandi að hætta í áskrift þarf að senda upplýsingar þess efnis í gegnum Íbúagáttina ( senda skilaboð til ábyrgðaraðila) fyrir 20. ágúst 2017.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira