logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Laus störf við Lágafellsskóla veturinn 2017-2018

16/06/2017

Lágafellsskóli Mosfellsbæ

Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi?

Viltu vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum?

Lágafellsskóli í Mosfellsbæ er heildstæður grunnskóli sem vinnur í anda uppbyggingarstefnunnar. Starfsemi skólans fer fram í tveimur byggingum þar sem 1. - 2. bekkur er staðsettur í útibúi skólans, Höfðabergi,  ásamt 5 ára leikskóladeildum.

Lausar stöður frá 1. ágúst 2017

 

Deildarstjóri óskast í stjórnendateymi skólans

Meginverkefni viðkomandi er þátttaka í þriggja manna stjórnunarteymi í Höfðabergi með ábyrgð á faglegu starfi grunnskólahlutans. Viðkomandi er jafnframt hluti af stjórnendateymi skólans.

        Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Grunnskólakennaramenntun er skilyrði
  • Framhaldsmenntun í stjórnun er æskileg sem og reynsla af sambærilegu starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum er skilyrði
  • Leiðtogahæfileikar eru nauðsynlegir
  • Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
  • Áhugi á starfsþróun, sem og nýjum og fjölbreyttum áherslum í skólastarfi er skilyrði

    Kennarar óskast í eftirtaldar stöður

    Umsjónarkennslu á yngsta og miðstig, um 80 – 100% stöður er að ræða Umsjónarkennslu á yngsta stig, tímabundið til 1. mars 2018 vegna fæðingarorlofs

     Menntunar- og hæfnikröfur:

    • Leyfisbréf grunnskólakennara
    • Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
    • Góð færni í samvinnu og samskipum
    • Góð færni í samvinnu og samskipum. 
    • Áhugi á starfi með börnum
    • Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
    •  
            Þroskaþjálfi óskast í 50 – 100% starfshlutfall, um framtíðarstarf er að ræða

         Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Háskólamenntun á sviði þroskaþjálfunar
  • Hæfni í mannlegum samskiptum er skilyrði
  • Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
  • Þekking og reynsla af atferlismótun æskileg

Ef ekki fæst þroskaþjálfi til starfa kemur til greina að ráða starfsmann með aðra háskólamenntun sem nýtist í starfið.

 Laun samkvæmt kjarasamningi SNS og viðkomandi stéttarfélags. Upplýsingar um starfið veitir Jóhanna Magnúsdóttir skólastjóra í síma 5259200 eða 8968230. Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila berist með tölvupósti á netfangið  johannam@lagafellsskoli.is

 

Umsóknarfrestur um störfin er til 30. júní 2017.

  Við hvetjum fólk af báðum kynjum til að sækja um

 

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira