logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Skólaslit vorið 2017

30/05/2017

Skólaslit í Lágafellsskóla vorið 2017

 

Skólaslit verða hjá 1. – 9. bekk skólans miðvikudaginn 7. júní. Nemendur í 3. – 9. bekk mæta til stuttrar athafnar í sal skólans og að henni lokinni fara þeir í sína stofu með umsjónarkennara, fá afhentan vitnisburð og kveðja kennara sinn. Nemendur fara heim að þessu loknu. Foreldrar eru hjartanlega velkomnir.

        Skólaslit í sal verða sem hér segir:

Kl. 09:30         8. og 9. bekkur                      

Kl. 10:00         7. bekkur

Kl. 10:30         5. og 6. bekkur

Kl. 11:00         4. bekkur

Kl. 11:30         3. bekkur

 

Skólaslit í Höfðabergi

Kl. 12:30         2. bekkur

Kl. 13:15         1. bekkur

 

Útskrift nemenda í 10. bekk verður í sal skólans, þriðjudaginn 6. júní kl. 19:30

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira