logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Laus störf við Lágafellsskóla

12/05/2017

Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi?

Viltu vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum.

Lágafellsskóli í Mosfellsbæ er heildstæður grunnskóli sem vinnur í anda uppbyggingarstefnunnar. Starfsemi skólans fer fram í tveimur byggingum þar sem 1. - 2. bekkur er staðsettur í útibúi skólans, Höfðabergi,  ásamt 5 ára leikskóladeildum.

Eftirtaldar stöður eru lausar til umsóknar frá 1.ágúst nema annað sér tekið fram:

  • Umsjónarkennsla á yngsta og miðsstigi
  • Afleysing í umsjónarkennslu á yngsta stigi til 1. mars 2018 vegna fæðingarorlofs
  • Íslenskukennsla á unglingastigi. Tímabundin ráðning til eins árs
  • Enskukennsla á unglingastigi, afleysing til áramóta vegna fæðingarorlofs
  • Dönskukennsla í unglingadeild, 50 – 60% ráðning

 

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Leyfisbréf grunnskólakennara
  • Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
  • Góð færni í samvinnu og samskiptum
  • Áhugi á starfi með börnum
  • Áhugi á starfsþróun og nýjum og fjölbreyttum áherslum í skólastarfi
  • Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki

     

    Deildarstjórastaða á leikskóladeild 5 ára barna í Höfðabergi. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

     Menntunar- og hæfnikröfur:

    • Leikskólakennaranám
    • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
    • Áhugi á starfi með börnum
    • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Þolinmæði og þrautseigja
  • Góð íslenskukunnátta

 

Þroskaþjálfastaða

       Menntunar- og hæfnikröfur:
      •       Háskólamenntun á sviði þroskaþjálfunar
        •     Góð hæfni í mannlegum samskiptum
        •     Jákvæðni og sjálfstæði í vinnubrögðum

Ef ekki fæst þroskaþjálfi til starfa kemur til greina að ráða starfsmann með aðra háskólamenntun sem nýtist í starfið.

Öll störf eru framtíðarstörf nema annað sé tekið fram.

 

Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélaga.

Upplýsingar veitir Jóhanna Magnúsdóttir skólastjóri í  síma 5259200/8968230. Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila sendist rafrænt á netfangið johannam@lagafellsskoli.is

Umsóknarfrestur um stöðurnar er til 26. maí 2017.  

Við hvetjum fólk af báðum kynjum til að sækja um.

 

 


 

 

 

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira