logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Laus störf í Lágafellsskóla

15/12/2016
Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi.
Má bjóða þér að vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum.

Lágafellsskóli í Mosfellsbæ er heildstæður grunnskóli sem vinnur í anda Uppbyggingarstefnunnar. Starfsemi skólans fer fram í tveimur byggingum þar sem 1. - 2. bekkur er staðsettur í útibúi skólans, Höfðabergi, ásamt 5 ára leikskóladeildum. 

Stuðningsfulltrúi óskast

Meginverkefni er aðstoð við nemendur í leik og starfi. Sérstaklega er leitað að karlmanni til starfa.
Vinnutími frá kl. 08:00. Möguleiki á vinnu í frístundaseli e.h. og þar með 100% starfshlutfalli. 

Menntunar- og hæfnikröfur:
• Reynsla og þekking sem nýtist í starfi.
• Áhugi á að vinna með börnum.
• Frumkvæði og sjálfstæði.
• Góð færni í samskiptum
• Stundvísi
• Góð íslenskukunnátta


Laus staða á leikskóladeild 5 ára barna í Höfðabergi, útibúi skólans

Starfshlutfall 50% og vinnutími 08:30 – 12:30. 

Menntunar- og hæfnikröfur:
  • Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun æskileg
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Áhugi og metnaður á starfi með börnum er skilyrði
  • Jákvæðni og góð hæfni í samskiptum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Góð íslenskukunnátta

Frístundaleiðbeinendur óskast í Frístundsel Lágafellsskóla

Frístundaleiðbeinendur taka þátt í skipulagningu faglegs frístundastarfs og leiðbeina börnum í leik og starfi í samvinnu við samstarfsfólk.
Um hlutastörf er að ræða og vinnutími frá kl. 13:00 – 17:00 en möguleiki er á styttri vinnutíma.

Menntunar- og hæfnikröfur:
  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
  • Áhugi á að vinna með börnum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði.
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Þolinmæði og þrautseigja


Ráðið verður í stöðurnar frá 9. janúar 2017.


Laun vegna auglýstra starfa eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélaga. 

Upplýsingar um ofangreind störf veitir Jóhanna Magnúsdóttir skólastjóri í síma 525 9200 / 896 8230. Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila sendist rafrænt á netfangið johannam@lagafellsskoli.is

Umsóknarfrestur framlengdur til 6. janúar 2017

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira