logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Próf og prófkvíði

25/04/2016
Síðasta Opna hús ársins hjá Skólaskrifstofu Mosfellsbæjar verður haldið miðvikudaginn 27. apríl klukkan 20 í ListasalMosfellsbæjar. Að þessu sinni mun Hulda Sólrún Guðmundsdóttir sálfræðingur fjalla um próf og prófkvíða barna.Kvíði er náttúrulegt viðbragð líkamans við álagi sem hjálpar okkur að takast á við aðstæður. Eðlileg spenna getur virkað hvetjandi í prófum og undirbúningi fyrir próf.Þannig getur kvíðinn virkað sem jákvæður hvati. Verði kvíðinn langvarandi eða yfirþyrmandi verður hann hins vegar hamlandi á árangur. Það er mismunandi eftir einstaklingum hversumiklum kvíða þeir finna fyrir og margir þættir sem spila þar inn í. Á þessu opna húsi ætlar Hulda Sólrún að skoða með okkur hvað foreldrar geti gert og hvað þurfa þeir að hafa í huga til að auðvelda börnum sínum að takast á við prófatímabil og óeðlilegan kvíða. Láttu þetta áhugaverða innlegg ekki framhjá þér fara, sjáumst!
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira