logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Laus störf við Lágafellsskóla veturinn 2016-17

07/04/2016

Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi þar sem einkunnarorðin SAMVERA, SAMVINNA OG SAMKENND eru höfð að leiðarljósi.

Laus störf frá og með næsta skólaári:

  • Umsjónarkennsla á yngsta stigi 
  • Umsjónarkennsla á miðstigi
  • Kennsla á elsta stigi, meðal kennslugreina eru stærðfræði, náttúrufræði, íslenska og samfélagsfræði
  • Tónmenntakennsla
  • Smíðakennsla, hlutastarf
  • Sérkennsla

Menntunar- og hæfnikröfur:
  • Leyfisbréf grunnskólakennara. Æskilegt er að umsækjendur um sérkennslu hafi lokið framhaldnámi í sérkennslufræðum
  • Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
  • Góð færni í samvinnu og samskiptum
  • Áhugi á starfi með börnum
  • Áhugi á starfsþróun, nýjum og fjölbreyttum áherslum í skólastarfi 
  • Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki

Staða náms- og starfsráðgjafa

Hlutverk náms- og starfsráðgjafa er að standa vörð um velferð nemenda, vera málsvari þeirra innan skólans og leiðbeina þeim varðandi námsframvindu þeirra. Náms- og starfsráðgjafi vinnur náið með stjórnendum skólans, kennurum og öðrum þeim sem koma að stoðþjónustu skólans.

Menntunar- og hæfnikröfur: 
Leitað er að starfsmanni sem hefur frumkvæði, er sjálfstæður í vinnubrögðum og leikinn í mannlegum samskiptum.
Umsækjendur þurfa að hafa leyfi mennta- og menningarmálaráðuneytis til að starfa sem náms- og starfsráðgjafar.

Deildarstjóri óskast inn á leikskóladeild 5 ára barna í Höfðabergi, útibúi Lágafellsskóla

Í Höfðabergi eru þrjár deildir 5 ára leikskólabarna ásamt 1. og 2. bekk grunnskóla

Menntunar- og hæfnikröfur: 
  • Leikskólakennaramenntun
  • Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
  • Góð færni í samvinnu og samskiptum
  • Áhugi á starfi með börnum
  • Áhugi á starfsþróun, nýjum og fjölbreyttum áherslum í skólastarfi 
  • Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki

Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélaga. 

Upplýsingar veitir Jóhanna Magnúsdóttir skólastjóri í síma 525 9200 /896 8230. Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila sendist rafrænt á netfangið johannam@lagafellsskoli.is

Umsóknarfrestur er til 22. apríl 2016 en ráðið er í stöðurnar frá 1. ágúst 2016. 

Við hvetjum fólk af báðum kynjum til að sækja um. 
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira