logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Litla upplestrarkeppnin

05/04/2016

Haustið 2012 var ákveðið að efna til nýs þróunarverkefnis í 4. bekkjum grunnskólanna í Mosfellsbæ en sams konar verkefni hófst í Hafnarfirði haustið 2010 og hlaut nafnið Litla upplestrarkeppnin.

Hugmyndin vaknaði þegar Stóra upplestrarkeppnin sem haldin er í 7. bekkjum grunnskóla landsins varð 15 ára og þótti tímabært að færa út kvíarnar.  og byggja á markmiðum Stóru upplestrarkeppninnar en þau eru að flytja móðurmálið sjálfum sér og öðrum til ánægju og hafa vandvirkni og virðingu að leiðarljósi.

 Litla upplestrarkeppnin hófst formlega 16. nóvember, á degi íslenskrar tungu, og stendur fram í apríl en þá lýkur verkefninu með sérstakri lokahátíð eða samverustund.

Nú í apríl verða haldnar lokahátíðir í öllum 4. bekkjunum okkar í Lágafellsskóla  en þar leggja allir nemendur sitt af mörkum. Hátíðin er í formi samveru með foreldrum og kennurum og allir nemendur fá viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna.

Lokahátíðirnar verða á eftirfarandi dögum og tímum í hátíðarsal skólans

 

  • 4. HS Mánudagurinn 11. apríl kl. 8:20
  • 4. RG Þriðjudagurinn 12. apríl kl. 8:20
  • 4. EÓ Mánudagurinn 18. apríl kl. 8:20
  • 4. DBS Þriðjudagurinn 19. apríl kl. 10:10
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira